Gróttumenn af Seltjarnarnesi sóttu okkar heim á Selfoss í gærkvöld og léku í 3. flokki karla. Þeir höfðu ekki erindi sem erfiði og fóru heim tómhentir. Selfyssingar báru sigur úr býtum 38-33 eftir að hafa leitt í hálfleik 19-16.
Leikurinn var jafn mest allan fyrri hálfleik, Grótta svona heldur á undan að skora, en munurinn aldrei meiri en eitt mark. Heimamenn náðu að skora þrjú síðustu mörkin í hálfleiknum og voru því yfir 19-16.
Selfyssingar byrjuðu síðari hálfleik vel og náðu fljótlega 6-8 marka forustu sem gestirnir náðu aldrei að ógna að neinu ráði. Nýtt varnarafbrigði heppnaðist afar vel og gaf nokkur auðveld mörk sem slökkti í Gróttumönnum.
Liðsheildin brást ekki að þessu sinni og skiluðu allir mjög miklu framlagi í leiknum. Einar átti stórleik sem og Ingvi, Toni og Keli, en allir skiluðu sínu. Magnús, Gísli og Bjössi léku minna en oft áður, en erfitt er að finna leiktíma fyrir alla ef mennirnir inn á standa sig líkt og í þessum leik.
Tölfræði
Einar 11 mörk, 7 stoðsendingar, 7 stolnir boltar og 10 brotin fríköst
Anton 9 mörk, 4 stoðsendingar, 2 fiskuð víti og 10 brotin fríköst
Ingvi 7 mörk, 3 stolnir og 13 brotin fríköst
Ketill 5 mörk og 8 brotin fríköst
Jóhann Gylfi 4 mörk, 4 stoðsendingar, 3 fiskuð víti og 12 brotin fríköst
Þorgeir 2 mörk og 6 brotin fríköst
Aðrir komust ekki á blað hvað markaskorun varðar en skiluðu margvíslegu og mikilvægu framlagi til liðsins
Axel varði 12 skot en fékk á sig 22
Hemmi varði 3 skot en fékk á sig 14
