Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

14.11.2009 | Handbolti

B-liđ 4. flokks lék gegn FH

B-lið 4. flokks lék gegn FH í dag í Vallaskóla. Fyrri hálfleikur var jafn lengst af en í síðari hálfleik sigu FH-ingar fram úr og unnu 17-23. Selfoss bætti sig mikið frá seinasta leik þótt enn sé margt sem megi gera betur.

 

Selfyssingar voru lengi í gang og var það nokkuð dýrt. FH-ingar komust í 3-6 eftir rétt rúmlega 10 mínútna leik. Eftir það bætti Selfoss í, þeir þéttu vörn sína og söxuðu jafnt og þétt á muninn. Þeir náðu að jafna áður en hálfleikurinn kláraðist en staðan var svo 9-10 í hálfleik.

 

Selfoss byrjaði seinni hálfleikinn einnig illa og misstu FH aftur fram úr sér. Selfoss reyndi að minnka muninn og voru alveg við það að gera þetta að alvöru leik aftur en allt kom fyrir ekki. Lokatölur urðu 17-23 sigur FH eftir að Selfoss hafði farið að taka sénsa í lokin.

 

Okkar menn bættu sig mikið frá seinasta leik en eiga enn nokkuð inni. Þeir byrja báða hálfleikina ekki nægilega vel og héldu ekki út heilan leik. Í vörninni var liðið lengi vel að leika vel en vantaði upp á á köflum. Í sókninni vantaði meiri fjölbreyttni og tóku menn oft rangar ákvarðanir, t.d. þegar leyst var inn.

 

Egidijus Mikalonis var bestur í Selfoss liðinu í dag og var mjög ákveðinn í bæði vörn og sókn. Egidijus er í mikilli framför og heldur vonandi áfram svona, en hann var á fullum krafti í leiknum og þannig er hann bestur. Aðrir voru aðeins frá sínu besta en flestir komu með fínar rispur við og við. Þeim þarf að fjölga og lengja og ná yfir heilan leik.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta