Leikurinn í dag þróaðist alveg eins og leikurinn á moti Aftureldingu á þriðjudaginn. Selfoss liðið betra mestan hluta leiksins og tók kippi reglulega upp í 2-3 mörk og einu sinni í seinni hálfleik meira að segja í 5 mörk. En í staðinn fyrir að klára með öruggum sigri þá kemst andstæðingurinn alltaf inn í leikinn aftur. ÍBV kom reglulega til baka og Selfoss tók þá kipp aftur. Um miðbik síðari hálfleiks leit út fyrir að Selfoss myndi klára þetta sannfærandi, en þá kom enn eitt bakslagið og þetta skipti komst ÍBV yfir. Allt leit út fyrir að sagan myndi endurtaka sig frá þriðjudeginum.
Þegar um 5 mín. voru eftir var ÍBV komið yfir í fyrsta skipti í leiknum, með boltann og einum leikmanni fleiri. Þá hrökk Selfoss liðið aftur í gang, vann mikilvæga bolta og skoraði 2 mikilvæg mörk úr hröðum sóknum og náði aftur frumkvæðinu. ÍBV fékk síðan dæmt á sig sóknarbrot þegar um 50 sekúndur voru eftir og Selfoss náði að bæta við 1 marki í viðbót og þar við sat. Jafn sætur sigur í höfn og tapið á þriðjudaginn var svekkjandi.
Við náðum tali af Sebastiani Alexanderssyni eftir leik og spurðum hann um leikinn:
"Já úff, þetta var alveg jafn ótrúlegt og ruglið á þriðjudaginn. Ég er mest ánægður með að við skyldum ná að snúa þessu við í dag. Tvö töp á 5 dögum þar sem við erum betri aðilinn hefði verið of mikið. Vörn og markvarsla eru svo sem í lagi hjá okkur en við þurfum að skoða hvað fer úrskeiðis hjá okkur í sókninni og laga það. Mér finnst við alltaf slaka á þegar við náum forskoti í staðinn fyrir að klára bara leikina. Ég veit það ekki, kannski "fíla" menn bara spennuna og dramatíkina meira en öruggan sigur. Það er gaman að spila í Eyjum og hvað þá vinna. Það er svo erfitt að spila þarna og hvað þá halda forystu. Ég er fullyrði það að Víkingur eða Afturelding eða bæði lið eiga eftir að tapa hérna. Þetta er lang erfiðasta umhverfi sem hægt er að spila í á landinu. Mikið af fólki alveg ofan í þér og ofboðslega mikil stemmning gegn þér. Allir að fara á taugum nema leikmenn ÍBV sem elska þetta umhverfi eðlilega. Ég finn til með Eyjamönnum og veit hvernig þeim líður eftir þetta tap því að við vorum í sömu stöðu á þriðjudaginn. Með unnin leik í lokin, en missa það frá sér í dramatískt tap. Ég spái því að þeir tapi ekki fleiri leikjum á heimavelli."
Markaskorarar Selfoss:
Ragnar Jóhannsson 8
Árni Steinn Steinþórsson 6
Atli Kristinsson 5
Hörður Bjarnarson 3
Guðni Ingvarsson 1
Sigurður Már Guðmundsson 1
Helgi Héðinsson 1
Sebastian Alexandersson varði 23 skot
Ástgeir Rúnar Sigmarsson kom inná í 1 viti en varði ekki í þetta skiptið
Næsta verkefni er bikarleikur gegn Þrótti á útivelli á þriðjudaginn og svo svo stórleikur við ÍR á heimavelli föstudaginn 20. nóv. kl. 19:30. Áfram Selfoss!
| HK | - | FH | 35 | : | 32 |
| Haukar | - | Fram | 31 | : | 24 |
| HK | - | Selfoss | 30 | : | 31 |
| Haukar | - | Valur | 23 | : | 17 |
| Selfoss | - | FH | 26 | : | 25 |
| Fram | - | Valur | 25 | : | 29 |
| 1.-2. sæti: | |||||
| Selfoss | - | Haukar | 34 | : | 32 |
| 3.-4. sæti: | : | ||||
| HK | - | Fram | 38 | : | 34 |
| 5.-6. sæti: | |||||
| FH | - | Valur | 24 | : | 23 |
Markahæsti leikmaður:
Bjarki Már Elísson, HK
Besti leikmaður mótsins.
Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK
Besti markmaður:
Birkir Fannar Bragason, Selfossi
Besti varnarmaður:
Freyr Brynjarsson, Haukum
Besti sóknarmaður:
Bjarki Már Elísson, HK
