Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

15.11.2009 | Handbolti

A-liđ 4. flokks sigrađi HK á útivelli

A-liðið í 4. flokki fór í Kópavoginn í dag að leika við HK. Um var að ræða hörkuleik sem var jafn lengst af. Selfyssingar voru lengi í gang en náðu að leiða 14-15 í hálfleik og vinna 25-31 í furðulegum leik. Strákarnir stóðu saman þegar mest á reyndi og héldu áfram þrátt fyrir mótlæti og geta þakkað því að þeir náðu að sigra leikinn.

Selfoss var mjög lengi í gang varnarlega. Framan af leik voru menn að klikka mikið á einföldum atriðum, svo sem innleysingum og fengu HK að skora afar ódýr mörk framan af. Leikurinn var jafn allan fyrri hálfleikinn, Selfoss leiddi til að byrja með. HK komst svo 14-12 yfir en Selfoss gerði seinustu þrjú mörk hálfleiksins og voru 14-15 yfir.

Drengirnir höfðu þá haft nokkuð á móti sér en einbeittu sér að sjálfum sér í síðari hálfleik. Liðið stóð saman og kom með aukna leikgleði á völlinn.Við það snarbatnaði leikur liðsins og Selfoss náði strax ágætu forskoti. HK jafnar svo í 21-21 en Selfoss náði þá aftur undirtökunum og unnu 25-31 sigur að lokum.

Sóknarleikurinn gekk vel að mörgu leyti. Liðið glataði þó 16 boltum í leiknum sem er alltof mikið. Þegar þeir náðu hins vegar að spila og settu upp þá gáfust iðulega góðar opnanir. Jákvætt er að markaskorun dreifðist vel á alla leikmenn og allir vel inni í leik liðsins. Í vörninni voru seinustu 30-35 mínúturnar góðar og þá spiluðu menn saman og var þá meiri vilji en í upphafi leiks.

Það skipti sköpum að Hermann fór í stuð í markinu í síðari hálfleik og varði þar 12 skot (52% markvarsla í síðari). Sverrir kom inn í byrjunarliðið og átti mjög góðan leik. Hann gerði góð mörk og átti 7 stoðsendingar líkt og Janus á miðjunni. Aðrir áttu fínan leik og skiluðu allir vel til liðsins.

Selfoss sýndi karakter í þessum leik með því að rífa sig upp eftir rólega byrjun og að standa saman. Ljóst er þó að liðið þarf betri frammistöðu í næsta leik ætli þeir sér að vinna KA.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta