Á laugardaginn unnu heimamenn á Selfossi lið Mosfellinga 35-26 eftir að í leikhléi hafi staðið 17-13. Leikurinn var sveiflukenndur en lauk þó með öruggum sigri okkar manna.
Gestirnir byrjuðu betur og komust í 5-8, en þá var eins og heimamenn segðu: Hingað og ekki lengra! Tóku þeir 12-5 kipp og leiddu því með fjórum mörkum í hálfleik.
Selfoss var alltaf skrefinu á undan í síðari hálfleik og munurinn sveiflaðist frá 4-7 mörkum en loks skildu okkar drengir liðsmenn UMFA eftir og unnu með níu mörkum.
Einar Sverrisson lék einna best liði Selfoss og þá átti Mágnús Már afar góða innkomu. Ketill tók sig saman í andlitinu og gerði fjögur góð mörk í síðari hálfleik. Þá barðist Ingvi vel og Jóhann Gylfi átti sinn langbesta leik það sem af er tímabilinu. Gísli Örn átti góða innkomu í fyrri hálfleik. Allir leikmenn skiluðu sínu sem er afar mikilvægt enda hefur það sýnt sig að þegar hlutirnir ganga þannig þá fær Selfoss ætíð eitthvað út úr leikjunum
Síðuritari verður þó að minnast á gestina. Öllum dómum mótmæltu þeir og var byrjað strax á 15. sekúndu leiksins. Alveg sama hvað var dæmt eða ekki dæmt, því var mótmælt og það kröftuglega. Framkoma þjálfarans var ekki til að róa leikmenn gestanna niður og voru heimamenn í nokkur skipti heppnir að meiðast ekki illa. Vissulega gera dómarar mistök, en eftir að síðuritari fékk að horfa á leikinn aftur af upptöku þá var ekkert sem getur fengið menn til að tryllast og haga sér líkt og gestirnir gerðu.
Tölfræði:
Einar 9 mörk, 5 stoðsendingar
Jóhann Gylfi 6 mörk, 4 stoðsendingar og 11 brotin fríköst
Magnús 4 mörk og 6 brotin fríköst
Ketill 4 mörk og 3 fráköst
Ingvi 4 mörk og 8 brotin fríköst
Toni 3 mörk og 4 stoðsendingar
Bjössi 2 mörk
Gísli 2 mörk'
Toggi 1 mark
Axel varði 16 skot og Hemmi 6
