Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

18.11.2009 | Handboltaakademía

Selfoss komið í 8 liða úrslit Bikarsins

Ástgeir Rúnar Sigmarsson og Ragnar Jóhannsson voru án efa menn leiksins í gær. Ástgeir varði 25 skot og fékk aðeins á sig 15 mörk sem gerir 63% markvörslu og Ragnar skoraði 12 mörk úr aðsins 14 skotum og átti þar að auki einar 5 stoðsendingar. Allir leikmenn fengu að spila og álaginu var vel dreift og þá voru sumir af þeim leikmönnum sem hafa verið fastamenn hingað til hreinlega hvíldir alveg í leiknum. Reyndar spilaði Ragnar meira en hann átti að gera þar sem Sjóli fékk högg í andlitið frá varnarmönnum Þróttar sem varð til þess að það þurfti að sauma nokkur spor efri vörina á honum eftir leik. Hann náði því einungis að spila hluta af þeim mínútum sem honum voru ætlaðar að þessu sinni.

Markaskorarar Selfoss:
Ragnar Jóhannsson  12
Hörður Bjarnarson  7
Einar Héðinsson  4
Helgi Héðinsson  3
Ársæll Ársælsson  3
Atli Kristinsson  1

Næsti leikur er stórleikur gegn ÍR á föstudaginn kemur í Vallaskóla kl. 19:30 og hvetjum við alla Selfyssinga til þess að koma og styðja strákana til sigurs.

Áfram Selfoss

 


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta