Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

18.11.2009 | Nýjustu fréttir

Er Sjónvarpiđ ađ mismuna félögum?

Í gærkvöldi áttust við Þróttur og Selfoss í 16 liða úrslitum Eimskips bikars karla í handbolta. Fór leikurinn fram í Laugardalshöllinni. Margir hafa eflaust beðið spenntir eftir úrslitunum í 10 fréttunum í Sjónvarpinu og að fá að sjá svipmyndir úr leiknum. Í lok fréttatímans var sagt frá leik Hauka og Hauka 2, sem einnig var í 16 liða úrslitunum og sýndar myndir úr þeim leik. Ekki var svo mikið sem minnst einu orði á leik Þróttar og Selfoss, hvað þá að sýndar væru myndir úr leiknum. Með þessu er Sjónvarpið augljóslega að mismuna félögum.

Þessi framkoma fjölmiðils allra landsmanna er með öllu óþolandi. Stundum hafa fengist þau svör að það sé svo dýrt að senda upptökulið á Selfoss og taka upp leiki þar. Í þessu tilviki dugar þessi afsökun ekki því leikurinn var í Laugardalshöllinni í Reykjavík. Það er meira að segja styttra fyrir starfsmenn Sjónvarpsins að fara niður í Laugardalshöll heldur en í Hafnarfjörð. Þess má geta að á mánudagskvöld áttust við í 16 liða úrslitunum Víkingur og Afturelding og var sýnt frá þeim leik. Þar kom fram að um 1. deildar slag væri að ræða. Leikur Þróttar og Selfoss var líka 1. deildar slagur því bæði lið leika í 1. deild.

Aðrir fjölmiðlar stóðu sig líka illa í fréttaflutningi. Í Morgunblaðinu í morgun birtust úrslit leiksins en engin umfjöllun. Fréttablaðið og DV sögðu ekkert frá leikjunum tveimur.

Það er engu líkara en að íþróttafréttaritarar haldi að íbúar á Selfossi hafi engan áhuga á sínu liði. Meira máli skiptir að birta fréttamola um hvort einhver íslenskur leikmaður hjá 2. eða 3. deildar liði í Evrópu kom við sögu í leik eða ekki. Úr þessu þurfa fjölmiðlar að bæta. Á Selfossi og reyndar mjög víða á landsbyggðinni, er mjög mikill áhugi á íþróttum og vilja menn fá fréttir af sínum mönnum. Fréttaflutning af árangri liða í 1. og 2. deild þarf að auka til muna. Á það við um allar íþróttagreinar. Einnig er fréttaflutningur af íþróttum barna- og unglinga allt of lítill.

ÖG


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta