Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

20.11.2009 | Handbolti

Stórleikur í handboltanum í kvöld kl. 19:30

IR_merkiLógó SelfossÍ kvöld sækja ÍR-ingar Selfyssinga heim í 1. deild karla í handbolta. Þetta verður án efa stórleikur, eins og ávallt þegar þessi lið hafa mæst undanfarin tímabil. Eftir 5 umferðir er Selfoss í 2. sæti deildarinnar með 8 stig, en ÍR-ingar eru í 3.-4. sæti ásamt Víkingum með 6 stig. Selfyssingar hafa bara tapað einum leik með einu marki gegn Aftureldingu sem er efst í deildinni með fullt hús stiga. Nú er um að gera að skella sér í Vallaskóla í kvöld og sjá spennandi viðureign. Leikur Selfoss og ÍR hefst kl. 19:30.

Viðkvæmum einstaklingum er ráðlagt að vera bara heima því spennustigið í síðustu tveimur leikjum Selfoss í deildinni hefur verið hátt. Í Mosó tapaðist unninn leikur með einu marki á síðustu sekúndunum, en í Eyjum vannst tveggja marka sigur eftir smá strögl í síðari hálfleik. Vörn og markvarsla Selfoss-liðsins hafa verið góð í haust og hefur verið gaman að sjá gamla brýnið á milli stanganna.

Aðgangseyrir er aðeins 500 kr. Pylsuvagninn er styrktaraðili leiksins og hægt að skella sér á pylsu og kók og fá frímiða á leikinn í kaupbæti. Stuðningsmannabolir hafa verið seldir á heimaleikjum Selfoss og er um að gera að klæðast rétta litnum. Bolirnir kosta aðeins 1.500 kr.

Leikir Selfoss það sem af er móti:
Fjölnir - Selfoss 14-32
Selfoss - Víkingur 22-20
Selfoss - Þróttur 35-22
Afturelding - Selfoss 26-25
ÍBV - Selfoss 23-25

Leikir ÍR það sem af er móti:
ÍR - Víkingur 30-28
ÍBV - ÍR 32-25
ÍR - Þróttur 33-27
Afturelding - ÍR 29-23
ÍR - Fjölnir 27-18


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta