Það var ljóst strax í upphafi að Selfyssingar komu betur undirbúnir til leiks. Þeir komust í 3-0 og svo 10-4. Staðan í hálfleik var svo eins og áður sagði 16-9. Okkar menn sýndu sitt besta í sóknarleiknum það sem af er vetrar, loksins segja sumir. Auðgljóst er að vinnan á æfingum er eitthvað að skila sér. Þá var varnarleikurinn og markvarslan á sínum stað. Sebastian átti mjög góðan leik í markinu í fyrri hálfeik og varði þá 11 af 14 skotum sínum og mörg þeirra úr opnum færum.
Selfoss byrjaði svo seinni hálfleikinn af miklum krafti og virtust hreinlega ætla að gera út um leikinn því að á 41 mín. leiksins var staðan orðin 25-12. En þá kom eitthvað kæruleysi í leik liðsins. Sóknarleikurinn sem hafði gengið svo vel fór aftur í sama farið og það var eins og allir ætluðu að gera þetta einir. Þá reyndar brast vörnin í fyrsta skipti í vetur ásamt því að leikmenn Selfoss hættu að hlaupa til baka og tóku upp á því að hreinlega oft á tíðum að labba í vörn. Það sáu ÍRingar og nýttu sér það til þess að laga sinn hlut í leiknum og náðu forskotinu niður í 4 mörk. Leikurinn endaði því 32-28 fyrir heimamenn.
Ragnar var valinn maður leiksins hjá heimamönnum. Fyrir utan hann áttu Einar Héðins, Guðni og Eyþór góðan dag í sókn. Vörninni stjórnaði Mikalonis eins og herforingi og þá var markvarslan fín. Þar sem aðstoðarþjálfari liðsins, Finnbogi Grétar, var farinn af svæðinu þá gripum við þjálfarann Sebastian enn einu sinni í að koma með komment á leikinn.
"Jú það er rétt hjá þér það var óþarfi að missa þetta góða forskot niður í lokin. Ég held að þegar að mínir menn slökuðu á þá hleyptu þeir þreytunni að enda 5. leikurinn á 14 dögum hjá þeimog reyndar sá 7. hjá þeim sem eru í 2. flokki. Þegar þú þreytist þá er einbeitingin það fyrsta sem fer og þá gerast svona hlutir. Hins vegar ber að einblína á það að sigur vannst á einu af þeim liðum sem eru í toppbaráttunni með okkur í vetur. Mér finnst við koma gríðarlega sterkir úr þessu þétta leikjaplani. Sigur í 4 leikjum og 1 tap þar sem að við vorum mun betri aðilinn en köstuðum frá okkur sigri í blálokin. Það hafa mun betri lið en við koksað á svona prógrami. Ég er bara mjög stoltur af mínum leikmönnum núna. Nú fáum við helgarfrí og náum að æfa eitthvað af viti í næstu viku og undirbúa lokakaflann. Það eru mjög spennandi verkefni framundan og við eigum ennþá helling inni."
Markaskorarar Selfoss:
Ragnar Jóhannsson 12
Guðni Ingvarsson 5
Einar Héðinsson 5
Eyþór Lárusson 4
Ramunas Mikalonis 2
Hörður Bjarnarson 1
Ársæll Ársælsson 1
Árni Steinn Steinþórsson 1
Helgi Héðinsson 1
Sebastian varði 14/1 skot og fékk á sig 15 mörk
Ásteir Rúnar Sigmarsson varði 7 skot og fékk á sig 13 mörk.
Næsti leikur er líka á heimavelli næsta föstudag kl. 19:30, en þá koma Fjölnismenn í heimsókn.
Áfram Selfoss
