HSK mótið í 4. flokki í handknattleik fór fram í Vallaskóla í dag. Fjögur lið kepptu þar, tvö frá Selfossi auk þess sem Biskupstungur og Dímon frá Hvolsvelli léku á mótinu. Mótið gekk verulega vel og stóð Selfoss 1 að lokum uppi sem sigurvegari með fullt hús stiga (6 stig). Mikil barátta var milli hinna liðanna um sæti. Tveir af þremur leikjum þeirra lauk með jafntefli og náði Selfoss 2 að vinna Dímon með einu marki og tryggja sér þannig 2. sætið með 3 stig. Biskupstungur enduðu í 3. sæti með 2 stig og að lokum varð Dímon í 4. sæti með 1 stig.
Eins og áður kom fram gekk mótið vel. Hart var barist og meiri hluti leikjanna afar spennandi allt fram á síðustu mínúturnar. Mikið gleðiefni er að handboltalið séu hjá Biskupstungum og Dímoni og gaman að sjá þau keppa. Ljóst er að þar eru margir flinkir handknattleiksmenn og sýndu þeir það í dag.
Selfoss liðin sýndu góða taka. Selfoss 1 var mun sterkara en önnur lið. Þá sýndi Selfoss 2 marga góða leikkafla í leikjunum. Sóknin gekk vel oft á tíðum og komu kaflar þar sem liðið spilaði betur saman en oftast áður í vetur og er það gleðiefni. Nokkuð vantaði þó upp á vörnina hjá þeim.
Hér koma svo myndir frá mótinu.
Selfoss 1 tekur hér við verðlaunum sem HSK-móts meistarar.
Selfoss 2 endaði í 2. sæti með 1 sigur, 1 jafntefli og 1 tap. Hinn vígalega Skúla Ólafsson vantar á myndina.
Biskupstungur enduðu í 3. sæti. Þeir gerðu tvö jafntefli og töpuðu einum leik. Biskupstungur sýndu flotta takta á mótinu og m.a. hönnuðu ný leikkerfi.
Dímon endaði í 4. sæti með eitt jafntefli og tvö töp. Líkt og hjá Biskupstungum eru þar leikmenn sem eru fínir handboltamenn.
