Eldra lið 3. flokks (92) og yngra lið 2. flokks (91) léku bæði um helgina og verður að segjast eins og er að útkoman var fjarri því sem menn höfðu óskað sér. Tap niðurstaðan í báðum leikjum. 92 tapaði í Hafnarfirði fyrir FH og 91 í Eyjum fyrir ÍBV.
92 liðið sá aldrei til sólar gegn FH og tapað afar illa 44-19 eftir að staðan hafi verið 25-8 í hálfleik. Ekkert gekk hjá Selfossi og hefði sennilega verið betra að vera heima heldur en að mæta til leiks með þessu hugarfari. Einar skoraði 10 mörk, Ingvi 4, Gísli 2 og Bjössi 2. Hemmi varði 8 skot og Axel 4.
91 liðið lék svo í Eyjum og tapaði þar 28-25 eftir að í hálfleik stóð 12-11 fyrir heimamönnum. Selfoss átti möguleika í leiknum, en fór illa með mörg góð færi og því fór sem fór. Matti skoraði 8 mörk, Andri M. 6, Andri H. 5, Örn 4, Sissi og Ingvi skoruðu svo báðir sitthvort markið. Sverrir varði 25 skot í markinu.
Síðuritari sá hvorugan leikinn en hafði samband við Arnar þjálfara til að fá nánari fréttir. Vildi síðuritari fá að vita hvort forföll hefði haft áhrif á liðin og hvernig þetta hafi verið. Arnar neitaði að tjá sig um forföll og sagði sjö hafa spilað gegn sjö úr röðum andstæðinganna. Að minnsta kosti oftast nær. FH leikinn sagði hann það versta sem hann hafi lent í í formi taps. Ekkert hafi verið með liðinu, sama á hvað er litið.
Gegn ÍBV áttu menn mikla möguleika en stóðust ekki prófið er á reyndi. Alltaf er erfitt að spila þegar áhorfendur stjórna dómurunum og taldi Arnar að betra hefði verið að dómarar leiksins hefði lánað áhorfendum eina flautu til að þeir gætu bara dæmt leikinn sjálfir. "Það sjá allir í húsinu að áhorfendur sjálfir hlægja að sumum krafa sinna, nema tveir menn, og þeir dæma umsvifalaust eins og pantað er, sama hve fjarstæðukennt það er". Arnar kvað að svo virtist sem annar dómarinn hafi eitthvað gegn Selfossi og þætti honum það leitt ef einhver óvild í sinn garð bitnaði á sínum leikmönnum. Allt aðrar reglur voru í gildi í leiknum í gær er varðaði Selfyssinga og þeirra aðgerðir. Að lokum kvað Arnar að þessi skilaboð kæmust eflaust áleiðis þar sem heimasíða Selfoss hafi verið hingað til vöktuð, enda stórhættuleg að sögn.
