Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

23.11.2009 | Handboltaakademía

3. flokkur B-lið gerði jafntefli við HK

Á laugardaginn mættu strákarnir okkar, sem eru í B liði 3. flokks og spila í 2. deild Íslandsmótsins, liði HK sem er eitt það besta í deildinni. Strákarnir ákváðu að gefa allt í leikinn og sjá hverju það myndi skila. Það skilaði jafntefli 37-37 en í hálfleik var 18-18. Frábær leikur hjá strákunum. 

Sóknarleikurinn var frábær í leiknum og reyndi HK liðið 2-3 varnarafbrigði án árangurs. Varnarlega var þetta erfitt fyrir okkar stráka enda HK menn eldri, stærri og sterkari. Engu að síður þá var baráttan til fyrirmyndar og uppskáru þeir því stig gegn þessu sterka HK liði.

 


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta