Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

27.11.2009 | Handboltaakademía

Sannfćrandi sigur á Fjölni

Það var gaman að sjá það að þrátt fyrir yfirburðina að þessu sinni þá var hvergi slegið af. Kannski var það vegna þess hvernig síðasti leikur þróaðist eða bara að leikmenn Selfoss eru farnir að taka öll verkefni alvarlega eins og alvöru lið gera. En hvað sem það var, þá leit liðið vel út í kvöld. Leikurinn liðsins var einbeittur í vörn og sókn í 60 mín. og gaman að sjá hversu vel sóknarleikur liðsins er að koma til án þess að það sjái á varnarleiknum.

Allir leikmenn á leikskýrslu fengu að spreyta sig að þessu sinni og gaman að sjá að öllum er treyst til að spila. Ragnar spilaði frekar lítið að þessu sinni og þá virtist Sebastian hvíla nokkra leikmenn sem hafa spilað mikið í vetur. 

Maður leiksins að þessu sinni var valinn Ástgeir Rúnar Sigmarsson markvörður, en hann stóð sig mjög vel þann tíma sem hann spilaði. Að öðru leiti er erfitt að velja einhverja sérstaka úr að þessu sinni.

Markaskorarar Selfoss:
Atli Kristinsson  8
Árni Steinn Steinþórsson  5
Gústaf Lilliendahl  5
Ragnar Jóhannsson  5
Guðni Ingvarsson  4
Atli Hjörvar Einarsson  4
Helgi Héðinsson  3
Hörður Másson  1
Eyþór Lárusson  1
Ástgeir var í markinu í 40 mín. og varði ein 17 skot og fékk á sig 10 mörk
Helgi Hlynsson spilaði síðustu 20 mín. og bætti við 9 vörðum skotum og fékk á sig 7mörk

Selfoss er því á toppnum a.m.k. þar til á morgun, en þá kemur í ljós hvort að lið UMFA nái í stig í Lundaholunni í Eyjum en það þykir víst erfiðasti útivöllur landsins.

Áfram Selfoss


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta