Þrátt fyrir tapið þá spiluðu okkar strákar fínan leik og voru inn í leiknum alveg þar til 10 mín. voru til leiksloka, en þá tókst Haukamönnum að auka bilið úr 1-2 mörkum í 3-4 og hélst sá munur til loka leiks. Meirihluta leiksins héldu þeir í við toppliðið og spiluðu af skynsemi. Sóknarleikurinn var ágætur og tókst strákunum að stjórna hraða leiksins sér í hag. Varnarleikurinn var á köflum alls ekki nógu góður og fyrir vikið var markvarslan lítil sem engin. Markmennirnir komust aldrei í takt við leikinn og vörðu þeir á milli sín aðeins 8 skot í leiknum.
Þrátt fyrir það þá eru framfarir liðsins jákvæðar og strákarnir hafa fengið góðan lærdóm af hverjum leik sem þeir hafa spilað. Niðurstaðan úr viðureignunum við A lið HK og Hauka í síðustu 2 leikjum er því jákvæð.
