Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

30.11.2009 | Handboltaakademía

Sigur á FH í 2. flokki

Selfoss leiddi leikinn frá upphafi, en baráttuglaðir FH-ingar héldu í við þá fram eftir fyrri hálfleik. Munurinn var aldrei nema 1-2 mörk þar til á lokamínútum hálfleiksins að okkar menn juku muninn í 4 með því að skora síðustu 2 mörk hálfleiksins. Staðan í hálfleik var 18-14 fyrir okkar menn.

Í síðari hálfleik varð strax augljóst í hvað stefndi. Varnarleikur Selfoss þéttist, markvarslan kom þá með og þá var ekki aftur snúið. Jafnt og þétt jókst munurinn og varð mestur 19 mörk áður en yfir lauk. Gestirnir skorðu svo síðustu 2 mörkin og lokatölur urðu 42-25.

Langbesti leikmaður gestanna var Reynir Jónasson. Þegar leið á seinni hálfleikinn þreyttist hann og aðrir leikmenn sem höfðu treyst á hann fram að því, náðu ekki að taka við þegar hann náði ekki að draga vagninn lengur. Þá átti Daníel Andrésson góðan fyrri hálfleik.

Í liði Selfoss var Ragnar Jóhannsson í sérklassa í þessum leik. Hann skoraði 18 mörk úr 23 skotum og átti þar að auki 11 stoðsendingar. Þá átti Helgi Hlynsson mjög góða innkomu í hálfleik. Hann varði alls 18 skot í síðari hálfeik og fékk á sig 11 mörk. Aðrir leikmenn skiluðu flestir sínu og spiluðu leikinn af fullri einbeitingu og krafti. Það var samt fyrst og fremst samstillt átak allra liðsmanna sem skóp sigurinn þrátt fyrir stórleik Ragnars og Helga.

Tölfræði:
Ragnar  18(23), 11 stoðs., 3 tapaðir boltar og 3 brotin fríköst
Eyþór  6(13), 2 stoðs., 1 fengið víti, 1 varið skot, 2 fráköst og 7 brotin fríköst 
Árni Steinn  5(5), 1 stoðs., 1 bolta náð, 1 fengið víti og 4 fráköst
Ársæll  5(9) og 1 frákast
Einar  3(3), 3 fengin víti og 7 brotin fríköst
Sigurður Már  2(4), 3 stoðs., 3 boltum náð, 1 bolta tapað, 1 varið skot og 5 brotin fríköst
Óskar Kúld  2(3), 3 stoðs., 2 boltum náð, 3 botlum tapað, 1 fengið víti, 3 varin skot, 2 fráköst og 17 brotin fríköst
Sveinbjörn  1(1), 1 fengið víti og 1 brotið fríkast
Ástgeir varði 6 skot (30%) og 1 tapaður bolti
Helgi varði 18 skot (62%), 1 stoðs. og 2 boltum náð


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta