Framarar gerðu góða ferð til Selfoss í gær og unnu okkar menn 33-35 í hörkuleik. Selfyssingar leiddu í 57 mínútur af 60 í leiknum, en það dugir víst ekki. Í hálfleik stóð 19-17 fyrir heimamenn.
Lið Fram er skipað hröðum og vel þjálfuðum drengjum sem okkar menn áttu í miklum erfiðleikum með að hemja. Verður þó að segjast að vörnin var vægast hræðilega léleg í leiknum. Menn unnu vitlaust, treystu ekki hvorir öðrum og brutu sig út úr þeim vinnureglum sem annars hafa gefist vel hingað til. Þá var markvarslan léleg þrátt fyrir 22skot varin í leiknum. Menn hefðu átt að einbeita sér meira að leiknum og því sem þeir áttu að gera í stað þess að rífast innbyrðis með tðui og skömmum.
Menn læra vonandi af þessum leik og mæta tilbúnir í leikinn gegn UMFA en það er næsti leikur liðsins.
Markaskor:
Sjóli 7
Andri Már 7
Matti 6
Örn 4
Andri Halls 4
Sigurþór 2
Anton 2
Steini 1
Sverrir varði 22 skot
| HK | - | FH | 35 | : | 32 |
| Haukar | - | Fram | 31 | : | 24 |
| HK | - | Selfoss | 30 | : | 31 |
| Haukar | - | Valur | 23 | : | 17 |
| Selfoss | - | FH | 26 | : | 25 |
| Fram | - | Valur | 25 | : | 29 |
| 1.-2. sæti: | |||||
| Selfoss | - | Haukar | 34 | : | 32 |
| 3.-4. sæti: | : | ||||
| HK | - | Fram | 38 | : | 34 |
| 5.-6. sæti: | |||||
| FH | - | Valur | 24 | : | 23 |
Markahæsti leikmaður:
Bjarki Már Elísson, HK
Besti leikmaður mótsins.
Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK
Besti markmaður:
Birkir Fannar Bragason, Selfossi
Besti varnarmaður:
Freyr Brynjarsson, Haukum
Besti sóknarmaður:
Bjarki Már Elísson, HK
