Strákarnir í 4. flokki Selfoss fór í gær ferð til Akureyrar og léku bæði A og B liðin gegn KA. Því miður var þetta ekki ferð til fjár því bæði lið töpuðu í æsispennandi leikjum. Möguleiki var í báðum leikjum að ná í það minnsta jafntefli og jafnvel sigri, en því miður fór ekki svo. B-liðið spilaði sinn besta leik í vetur og er það jákvætt. A-liðið hins vegar var langt frá sínu besta.
A-liðið byrjaði betur og náði forystu 3-5. Eftir það voru KA-menn mikið sterkari. Þeir léku öflugri vörn, voru ákveðnari í lausa bolta og öll smáatriði og hreinlega vildu meira vinna en Selfyssingar. KA leiddi 16-13 í hálfleik. Í síðari hálfleik var KA alltaf á undan. Þegar 8 mínútur voru eftir var útlitið dökkt fyrir Selfyssinga og staðan 29-25 fyrir KA. Á rúmlega fjórum mínútum minnkar Selfoss muninn í 30-29 og átti möguleika á að jafna. Þeir náðu því ekki og vann KA að lokum 31-29.
Selfyssingar geta einungis sjálfum sér um kennt. Þeir klikkuðu á grunnþáttum og virðist hafa vantað upp á hugarfarið í leiknum. Þrátt fyrir að vera langt frá sínu besta var Selfoss með vinnanlegan leik. Þeim tókst þó alltaf að klúðra möguleikum sínum ýmist með klúðri á dauðafærum, glötuðum sendingum eða með því að taka ekki fráköst þegar mikið lá við.
Sóknarleikurinn var slakur. Lítil hreyfing var á mönnum og vantaði ákveðni í marga leikmenn. Samspil liðsins var afleitt, kerfin mörg spiluð illa og ekkert í gangi. Það sanna 7 stoðsendingar í leiknum best (liðið átti 19 og 16 stoðsendingar í sigrunum gegn Haukum og HK). Þá var varnarleikurinn enn verri. Enginn vilji var til að spila hann en Selfoss virðist einungis spila vörn annan hvern leik. Það skipti litlu hvernig Selfoss spilaði þar, aldrei gátu leikmenn klárað sína menn.
Þessi tvö glötuðu stig eru sár. Aðallega í ljósi þess að leikmenn geta mikið betur og voru langt frá sinni eðlilegri getu.
B-liðið var nokkra stund í gang gegn KA. KA náði strax forystu og bætti við hana jafnt og þétt í fyrri hálfleik og leiddu 14-9 er gengið var til búningsherbergja. Þrátt fyrir að vera 5 mörkum undir var frammistaða Selfoss nokkuð góð, liðið hafði verið að leika úrvals sókn og spila mjög vel saman. Þeir hins vegar klikkuðu mikið af opnum færum sem þeir sköpuðu sér iðulega.
Í seinni hálfleik fór Selfoss að nýta færin mun betur. Mikil leikgleði og barátta kom í liðið og komst Selfoss alltaf nær og nær KA. Þeir minnkuðu í eitt mark og áttu nokkur tækifæri á að jafna leikinn en ekki tókst það. Lokatölur urðu 30-26 sigur KA en heimamenn skoruðu seinustu 3 mörk leiksins.
Mjög gaman var að sjá liðið og léku þeir sinn besta leik í betur. Sóknin var verulega góð og liðið að leika upp á fín færi. Síðari hálfleikurinn var frábær og hefðu þeir leikið fyrri hálfleikinn að jafn miklum krafti hefði klárlega unnist sigur í leiknum. Liðið hefur bætt sig mikið að undanförnu og þarf að byggja á þessum leik.
Egidijus Mikalonis heldur áfram að bæta sig og gerði 10 mörk í leiknum. Skúli og Hjörtur eru í nýjum hlutverkum og stjórnuðu spili Selfoss mjög vel í leiknum. Þá kom Þórður mjög sterkur upp í seinni hálfleik og Gísli Rúnar átti góðan leik og er á leið upp á við. Í markinu varði Jón oft vel í leiknum.
