Fimmtudaginn 3. des. hélt handknattleiksdeild Umf. Selfoss jólahlaðborð fyrir iðkendur í 3. flokki og upp úr. Auk þeirra mættu stjórn handknattleiksdeildar ásamt helstu styrktaraðilum handboltaakademíunnar. Alls voru um 75 manns sem gæddu sér á glæsilegum kræsingunum í Tíbrá.
Fyrir hönd allra leikmanna af báðum kynjum þá viljum við þakka henni Lilju okkar sérstaklega fyrir frábært jólahlaðborð og frábæra kvöldstund. Það er svo mikilvægt fyrir okkur öll að skipta aðeins um gír og gera eitthvað annað en að æfa og spila handbolta. Við erum svo heppin að Umf. Selfoss er svo miklu meira en það að æfa og keppa.
