Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

5.12.2009 | Handbolti

4. flokkur karla úr leik í bikar

4. flokkur Selfoss mætti Gróttu í bikar í gærkvöldi. Leikurinn var afar sérkennilegur og er óhætt að segja að lítið sem ekkert hafi fallið með Selfossi í leiknum. Eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í hálfleik vann Grótta 28-21 sigur. Selfyssingar reyndu í leiknum en ólán þeirra var algjört þennan daginn og sem dæmi um það þá átti Selfoss heil 12 skot í annað hvort stöng eða slá í leiknum.

Selfoss skoraði fyrstu 2 mörk leiksins en eftir það var Grótta alltaf skrefinu á undan. Grótta komst í 7-4 og leiddu 9-6 stuttu síðar. Eftir því sem leið á hálfleikinn lagðaði Selfoss sóknarleik sinn til mikilla muna, þeir fóru að láta boltann ganga betur og vinna meira saman. Þar af leiðandi fengu þeir betri færi. Selfoss minnkar í 9-8, en með einstökum klaufaskap, bæði manni fleiri og tveimur leikmönnum fleiri, missa þeir Gróttu enn lengra frá sér og staðan 13-10 í hálfleik.

Í síðari hálfleik byrjaði Grótta mun betur og náði sex marka forskoti. Selfyssingar neituðu að gefast upp, þéttu vörn sína og minnkuðu muninn í 19-17. Þá var nóg eftir. Mjög miklu munaði í þessari stöðu að þá skorar Grótta næstu tvö mörk sín með því að stíga augljóslega á línu í færum sínum. Í næstu sókn þar á eftir var Gísli Þór svo rekinn útaf fyrir óskiljanlegar sakir. Var þá Grótta komin aftur með góða forystu og átti Selfoss aldrei möguleika eftir það. Lokatölur urðu 28-21 eftir að Selfoss hafi hætt síðustu mínúturnar.

Strákarnir gáfu allt sitt í leikinn, en mættu líklegast yfirspenntir í leikinn. Þeir ætluðu sér hreinlega of mikið. Í kjölfarið gerði liðið mikið af mistökum sem það gerir vanalega ekki. Það féll ekkert með liðinu í leiknum. Eins og áður kom fram voru sláar- og stangarskot 12 í leiknum. Þá klikkaði liðið einnig fleiri skotum úr mjög fínum færum og munar svo sannarlega um það. Einnig náði liðið ekki að nýta kafla þar sem þeir voru manni, og jafnvel tveimur, fleiri. Svona svo einhver atriði séu nefnd.

Þessi leikur fer í reynslubankann. Ljóst er að möguleikarnir voru allir í leiknum, en það bara féll ekkert með liðinu. Selfoss mætir sama Gróttu liði aftur eftir 9 daga og hlýtur að vera langt í það að lánleysi líkt og í gær herji aftur á liðið. Gaman verður að sjá þann leik.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta