Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

7.12.2009 | Handbolti

B-liđ 4. flokks tapađi gegn Stjörnunni

B-lið 4. flokks karla lék gegn Stjörnunni í gær. Stjarnan er með hörkulið og vann m.a. A-lið ÍR í bikarnum. Selfyssingar léku gríðarlega vel lengst af í leiknum og var leikurinn í járnum löngum stundum. Í lokin hins vegar sigu Stjörnumenn nokkuð fram úr og náðu að sigra.

 

Selfyssingar lögðu sig fram frá byrjun og seldu sig dýrt gegn Stjörnumönnum. Gestirnir náðu þó forystunni en Selfyssingar voru að skapa sér góð færi framan af sem þeir náðu ekki að klára. Það lagaðast þó eftir því sem á leið og var staðan 10-12 fyrir Stjörnunni í hálfleik.

 

Okkar menn reyndu hvað þeir gátu í byrjun seinni hálfleiks og náðu að minnka muninn í 19-20 og voru manni fleiri. Hafði liðið þá leikið glimrandi handbolta. Verið að fá góð færi í sókninni með góðu samspili og spilað nokkuð góða vörn. Þessa stöðu manni fleiri ná þeir hins vegar ekki að notfæra sér og bæta Stjörnumenn við forskotið. Við það hætti Selfoss að nota leikskipulag sitt og bætti Stjarnan gríðarlega við muninn seinustu 10 mínútur leiksins þar sem leikur Selfoss var algjör andstæða við þær tæpu 40 mín þar á undan. Vörnin gal opnaðist, spil í sókninni sáralítið í lokin og margir glataðir boltar í kjölfarið að því. Lokatölur urðu 22-31 sigur Stjörnunnar.

 

Selfoss var í góðu færi að vinna leik gegn góðu liði og lék sínar bestu 40 mínútur í vetur í leiknum. Þegar þeir urðu hins vegar þreyttir undir lokin, og við smá mótlæti, hættu þeir að spila eins og lagt var upp með og reyndist það dýrkeypt. Okkar menn halda þó áfram að bæta sinn leik. Í seinasta leik á undan voru tæplega 25 mjög góðar mínútur gegn KA. Núna voru þær í kringum 40 og liðið í dauðafæri að ná yfirhöndinni í leiknum. Vonandi verða mínúturnar  50 í næsta leik en ljóst er að mikið býr í liðinu og vonandi eru strákarnir að byrja að átta sig á því.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta