Selfoss tapaði í gær fyrir HK í 8 liða úrslitum í Bikarkeppninni. Leikurinn endaði 18-25 fyrir HK, en staðan í hálfleik hafði verið 9-10 fyrir gestina. Okkar menn náðu sér aldrei á strik í sókninni að þessu sinni og því fór sem fór.
Selfoss byrjaði betur og komst í 3-0 en svo var sem allt færi úrskeiðis í sóknarleiknum. HK komst yfir 4-7 en þá tók Selfoss við sér aftur og staðan í hálfleik var 9-10 fyrir HK. Varnarleikur og markvarsla beggja liða var framúrskarandi í fyrri hálfleik og það eina sem greindi á milli liðanna í fyrri hálfleik voru vítaköstin 3 sem HK fékk á meðan að Selfoss átti að fá a.m.k. jafn mörg vítaköst. Um síðari hálfleikinn er lítið annað hægt að segja en að Selfossliðið hefur alfrei spilað jafn dapran sóknarleik og í þeim hálfleik. Öll skot voru mjög slök, leikur liðsins varð mjög hægur og staður og síðast en ekki síst heill aragrúi af sóknarmistökum, en liðið tapaði alls 16 boltum í leiknum, langflestum þeirra í síðari hálfleik. Það verður því að segjast að HK liðið vann verðskuldaðan sigur. Nú þarf Selfossliðið að einbeita sér að deildinni og næsta verkefni er algjör toppslagur við Víking á útivelli næsta föstudagskvöld. Með sigri þar mun Selfoss fara í jólapásuna í efsta sæti.
Við náðum tali af Sebastian og spurðum hann um leikinn?
HK liðið náði að stjórna leiknum algjörlega. Þeir náðu okkur í að spila þennan hæga bolta sem þeir spila svo vel. Vandinn er bara sá að við kunnum ekki að spila svona enda vanir allt öðru. Fyrir vikið náðum við okkur aldrei í gang. Svo þegar við sýndum smá lífsmark um miðjan seinni hálfleik þá tók Gunni strax leikhlé og drap það í fæðingu. Eftir leikhléið þá náum við okkur aldrei í gang og þetta versnaði ef eitthvað var. Þetta er líklega daprasti sóknarleikur sem lið undir minni stjórn hefur spilað síðan ég byrjaði að þjálfa árið 1993. Kosturinn er hins vegar sá að við erum þá búnir að taka þetta út. Við spilum ekki svona aftur og það er betra að þetta kom í bikarnum en ekki í deildinni.
Varstu ánægður með eitthvað í leiknum?
Já já, ljósi punkturinn var varnarleikurinn en liðið hefur nú þegar mótið er komið inn í desember ekki fengið á sig nema tæpt 21 mark að meðaltali í leik. Ég leyfi mér að efast um það að annað lið á landinu nái því. Hins vegar er ljóst að liðið á langt í land með sóknarleikinn. Við vorum að skora á síðasta tímabili að meðaltali um 33 mörk í leik og sóknin var þá aðall liðsins. Þá var varnarleikurinn vandamál. Ég ákvað að eyða stórum hluta undirbúningstímabilsins í varnarleikinn og nú hefur hann verið lagaður en þá dettur sóknin niður um leið. Það verður bara að segjast eins og er að okkur gengur bara illa að hafa báða hlutina í lagi í einu. Kannski er þetta bara allt mér að kenna.
Við heyrðum viðtalið þitt við SportTV. Fannst þér virkilega HK liðið spila svona hægt eins og þú gafst í skyn þar?
Ég hef í raun ekkert út á HK að setja. Þeir spiluðu sinn leik en ekki við. Þeir spila eftir þeirri línu sem dæmt er eftir. Ég var hins vegar bæði pirraður yfir því að við spiluðum ekki okkar leik og því að dómarar leiksins hafi ekki gefið merki um leiktöf oftar í leiknum en ég held að ég fari örugglega með rétt mál þegar ég segi að þeir hafi bara fengið hendina upp þrisvar í öllum leiknum og í öll skiptin í blálokin. Þeir tóku sér oftast einar 35-40 sekúndur í að labba í rólegheitum í stöðurnar sínar og enginn leikmaður hjá þeim svo mikið sem byrjaður að horfa á markið hvað þá sækja. Við erum að upplifa það í okkar deild í vetur að fá hendina upp eftir 20-25 sekúndur eins og í Eyjum um daginn og í leiknum við UMFA sem t.d. þessir sömu dómarar dæmdu. Og skýringin? Það er ekkert að gerast? Það er megin ástæðan fyrir því hversu mikla áherslu við leggjum á hraðan sóknarleik og hversu stuttar sóknirnar okkar eru. Ég veit það ekki en kannski eru bara aðrar reglur fyrir úrvalsdeildina en 1 deildina hvað þetta varðar.
Framhaldið?
Þetta snýst allt um deildina að sjálfsögðu. Bikarkeppnin er bara bónus á meðan við erum að keppa um að komast í efstu deild. Í fyrra komumst við í undanúrslit og núna í 8 liða úrslit. Mér finnst það bara alls ekkert slæmt. En aðalatriðið er deildin. Á föstudaginn fáum við toppslag gegn Víkingum sem eru með gott lið og hafa verið á uppleið. Við stefnum á að vinna þann leik og fara í jólafríið á toppnum.
