Selfoss byrjaði betur í leiknum í kvöld og komst fljótt í 3-6 en Víkingar komu ávallt til baka. Það varð svo saga leiksins. Selfoss var ávallt við það að slíta sig frá, en náðu aldrei 5. markinu til að setja gott bil á milli liðanna. Í staðinn komu ákveðnir Víkingar alltaf til baka og náðu tvisvar sinnum að jafna seint í síðari hálfeik. Þeir fengu tækifæri til að komast yfir, en sem betur fer brutu þeir aldrei þann ís. Selfoss leiddi allan leikinn og náði að standa af sér lokaatlögu heimamanna og innbyrða gríðarlega sætan og mikilvægan sigur.
Þarna mættust tvö bestu varnarlið deildarinnar, en það fór eitthvað lítið fyrir því í þessum leik. Sóknarleikurinn sem felldi Selfyssinga í bikarleiknum gegn HK var allur annar og betri og það gegn síst verra varnarliði. Breytingar á leikmannahópnum skiluðu sér. Bæði Hörður Bjarnarson og Baldur Þór Elíasson stóðu sig vel í hornunum og skiluðu á milli sín 8 mörkum. Hvorugur þeirra var í hópnum í síðasta leik. Atli Kristinsson átti stórleik og skoraði 10 mörk. Þá áttu Ívar Grétarsson og Hörður (Sjóli) Másson góða innkomu. Ívar kom með mikilvæga baráttu og áræðni inn í leikinn og Sjóli hefði mátt spila meira þar sem Ragnar náði sér ekki á strik í sókninni annan leikinn í röð.
Varnarleikurinn sem hefur verið svo góður í vetur var ekki alveg að gera sig í þetta skipti. Engu að síður steig vörnin upp í lokin þegar mest þurfti á að halda. Fyrir aftan hana átti Sebastian ekki sinn besta dag, en varði þó 20 skot. Hins vegar varði hann mjög mikilvæg skot í lokin einmitt þegar mest þurfti á að halda og innsiglaði sigurinn ásamt einstaklingsframtaki Helga Héðinssonar sem hafði átt mjög slakan dag fram að lokakaflanum. Hann skoraði 2 af síðustu 3 mörkum Selfoss í leiknum með gegnumbroti.
Ekki fengust frekari upplýsingar um leikinn að svo stöddu en vonandi verður bætt úr því á næstu dögum.
Áfram Selfoss
