Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

14.12.2009 | Handboltaakademía

Ţrír leikir hjá 2. og 3. flokki

Bæði 3. flokks liðin hafa leikið að undanförnu sem og yngra lið 2. flokks. Sigur náðist í tveimur leikjum af þremur. 92 lið Selfoss tapaði gegn Fram, 93 vann lið Þróttar og svo vann 91 (2. fl) lið Aftureldingar.

92 liðið lék afar illa gegn Fram í Safamýri fyrir stuttu og sáu í raun aldrei til sólar. Tap staðreynd 40-24 eftir að hálfleik hafði staðið 20-12. Tölurnar segja að ekki var vörnin góð í leiknum og þá var skotnýting manna afar léleg. Þó alls ekki vegna góðrar markvörslu Fram heldur hittu menn markið fremur illa. Þessi lið mætast aftur þriðjudaginn 15. desember í Safamýri kl 18.00 í bikarkeppni HSÍ og verður vonandi nýtt lið mætt til leiks þá. Síðuritari heyrði orðróm þess efnis að Arnar þjálfari hafi yfirgefið svæðið nokkrum mínútum fyrir leikslok og spurði hann Arnar um það. Svar Arnars: Fólk sem tjáir sig með þessum hætti ætti að leita sér sérfræðiaðstoðar því eitthvað verulega mikið hlýtur að vera að. Í dag (sunnudag) var ég með video-fund ásamt leikmönnum þar sem við einmitt hlógum að þessu rugli því ég sést þarna enn eftir að leik lýkur.

Mörk: Einar 6, Ketill 6, Anton 5, Magnús 3, Jóhannes mímí 2, Ingvi 1, Jóhann Gylfi 1. Varin skot: Axel 7 og Hermann 5.

91-liðið (yngra lið 2. flokks) lék gegn Aftureldingu og vann 35-29 eftir að í hálfleik stóð jafnt 16-16. Selfoss lék illa í fyrri hálfleik og vörnin var afar döpur. Andri Halls breytti þó þar miklu um og við það skánaði vörnin umtalsvert og Selfoss fór að fá hraðari sóknir sem og auðveld mörk.

Mörk: Andri Más 8, Matthías 7, Örn, Hörður Másson og Andri Halls allir með 5, Aðalsteinn 3 og Toni 1. Varin skot: Sverrir 23 og Axel 2.

93-liðið vann svo Þróttara í fjörugum leik 30-26, en Selfoss leiddi á hálfleik 12-10. Selfoss lék á löngum köflum leiksins vel og menn börðust mikið og uppskáru eftir því. Góð hraðaupphlaup, gott samspil og góð vörn sem og markvarsla var aðallinn í leiknum. Gaman var að sjá línuspil virka vel og þá var skemmtilegt að sjá menn loksins spila upp á vinstra hornið og fékk Árni Geir loks eitthvað að gera.

Mörk: Björn 10, Gabríel 7, Árni Felix 5, Árni Geir 4, Janus 2, Jóhann Jóns og Sverrir sitthvort markið. Bogi varði 22 skot.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta