Okkar drengir í 3.flokki sóttu Framara heim síðastliðinn þriðjudag og urðu því miður að játa sig sigraða 34-32 eftir að heimamenn leiddu í hálfleik 19-15. Selfoss lék mun betur en í leiknum á undan gegn sama Framliði. Nú var liðið einbeitt, þorði og lagði sig allt í verkefnið. Það dugði þó ekki að þessu sinni.
Framarar voru alltaf á undan í leiknum og náðu mest fimm marka forskoti í fyrri hálfleik. Selfyssingar sóttu alltaf til baka og komu sér inn í leikinn og voru aldrei langt undan. Framarar leiddu í hálfleik með fjórum mörkum.
Okkar menn náðu að minnka muninn í 22-19 og virtust ætla að geta ógnað Frömurum en þá kom skelfilegur leikkafli og heimamenn náðu að gera sex mörk án þess að Selfyssingar næðu að svara fyrir sig. Í stöðunni 31-24 tóku svo Selfyssingar leikhlé sem gafst vel og þeir luku leiknum með 8-3 kafla. Aldrei er að vita hvort okkar drengir hefðu náð Frömurum því eitt vítakast fór í súginn á þessum kafla sem og nokkur góð tækifæri. Lokatölur því 34-32 í hörkuleik og er óhætt að segja þennan leik skref í rétta átt. Því hingað til hafa Selfyssingar leikið vægast sagt hörmulega á útivelli það sem af er tímabilinu.
Tölfræði
Einar 10 mörk, 2 fiskuð víti og 7 stoðsendingar
Ketill 5 mörk
Anton 5 mörk, 5 stoðsendingar og 2 stolnir boltar
Ingvi 4 mörk og 2 stolnir
Jóhann Gylfi 4 mörk
Árni Felix 1 mark og 3 stoðsendingar
Magnús 1 mark
Hermann varði 10 skot og Axel 4
