Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

17.12.2009 | Handboltaakademía

Stađan í handboltanum um áramót

Selfoss er í efsta sæti deildarinnar með 14 stig aðeins 1 stigi á undan Aftureldingu. Liðið hefur unnið sjö leiki og tapað aðeins einum, fyrir Aftureldingu á útivelli. Það tap var grátlegt í alla staði enda Selfoss með unna stöðu en tókst á ævintýralegan hátt að missa leikinn í tap á síðustu sekúndu leiksins. Í kjölfarið gerðu Mosfellingar jafntefli við Víking á útivelli og töpuðu svo fyrir vinum okkar í Vestmannaeyjum og því eru þeir í öðru sæti deildarinnar með 13 stig.  

Selfoss hefur skorað flest mörk í deildinni það sem af er eða 239 sem gerir 29,88 mörk að meðaltali í leik. Selfoss er einnig það lið sem hefur fengið fæst mörk á sig í deildinni það sem af er eða 180 sem gerir 22,50 að meðaltali í leik. Þess ber þó að geta að bæði Víkingur og Afturelding hafa fengið á sig 182 mörk eða 22,75 að meðaltali í leik þannig að ekki munar miklu. Þessi þrjú lið skera sig nokkuð úr sem bestu varnarliðin í deildinni. Það þýðir að Selfoss er með 59 mörk í plús sem er það besta í deildinni en næstir koma Víkingar með 42 og svo Afturelding með 40.

Þá á Selfoss markahæsta leikmann deildarinnar. Ragnar Jóhannsson hefur skorað 66 mörk eða 8,25 að meðaltali í leik. Næstu menn eru Brynjar Steinarsson hjá ÍR með 52 (7,43 í leik), Atli Kristinsson hjá Selfossi með 50 (7,14 í leik), Bjarni Aron Þórðarson hjá Aftureldingu með 45 (6,43 í leik). Þá er Sigurður Bragason kominn með 47 (6,71 í leik) mörk en hann á eftir að spila einn leik n.k. laugardag á móti Fjölni. Hann þarf að skora 20 mörk í þeim leik til þess að komast fram úr Ragnari. Ólíklegt verður að teljast að hann nái því, en nokkuð öruggt er að hann verður annar markhæsti leikmaður deildarinnar í fríinu m.v. meðaltalið hans í deildinni.

Ekki hefur heimasíðan upplýsingar um markvörslu annarra liða, en það verður þó að teljast ólíklegt að Selfoss sé ekki á meðal þeirra sem eru með bestu markvörslu deildarinnar. Sebastian Alexandersson hefur spilað mest markvarða liðsins. Hann hefur varið alls 108 skot í þeim 6 leikjum sem hann hefur tekið þátt í eða 18 skot að meðaltali í leik. Hann hefur fengið á sig 127 mörk eða 21,17 að meðaltali í leik sem þýðir að hann er með 46% markvörslu í deildinni. Ástgeir Rúnar Sigmarsson er búinn að verja 43 skot og fá á sig 40 mörk sem gerir 52% markvörslu og loks hefur Helgi Hlynsson varið 18 skot og fengið á sig 13 mörk sem gerir 58% markvörslu. Samtals gerir þetta 166 varin skot og 180 mörk fengin á sig eða 48% markvörslu í deildinni.

Í bikarkeppninni vann Selfoss tvo leiki og tapað einum. Liðið datt út í 8 liða úrslitum gegn HK. Selfoss skoraði 86 mörk í leikjunum þremur eða 28,67 að meðaltali. Liðið fékk á sig 59 mörk í þessum leikjum eða 19,67 að meðaltali. Markahæstu leikmenn Selfoss í bikarleikjunum eru Árni Steinn með 10 mörk í tveimur leikjum og Ragnar með 14 mörk sömuleiðis í tveimur leikjum. Þá skoraði Atli Kristins einnig 14 mörk en í þremur leikjum. Markvarslan er einnig frábær í Bikarkeppninni. Sebastian varði 51,5 % í leikjum bikarkeppninnar og Ástgeir varði 56% þann tíma sem hann spilaði.

Niðurstaðan er því sú að Selfoss hefur spilað 11 opinbera leiki í mótum á vegum HSÍ það sem af tímabilsins og unnið 9 þeirra og tapað 2 sem gerir 82% vinningshlutfall. Það verður að teljast frábær árangur. Heimasíðan vill þó þrátt fyrir þessa upptalningu benda á að tímabilið er einungis hálfnað og því er enn tækifæri til að gera a.m.k. jafn vel og helst betur. Þessar tölur hjálpa liðinu ekkert eftir áramót og því er það von okkar að liðið æfi vel í pásunni.

Jafnframt viljum við nota tækifærið og þakka öllum þeim sem hafa unnið í kringum liðið og stutt það í pöllunum fyrir sitt framlag og óskum öllum gleðilegrar hátíðar.

Áfram Selfoss

 

 

 

 


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta