Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

18.12.2009 | Handboltaakademía

2. flokkur áfram í bikarnum

Selfoss spilaði ekkert sérlega vel í leiknum en hafði þetta af í lokin með þolinmæði og yfirvegun. Framliðið sem er á toppnum í 2. deild Íslandsmótsins spilaði vel úr sínum málum enda vel þjálfaðir, baráttuglaðir og skipulagðir. Sebastian tók mikla áhættu með því að láta langflesta leikmenn liðsins vera á þrekæfingum með meistaraflokki alla vikuna en það slapp fyrir horn með það að þessu sinni. Það var augljóst að menn voru þreyttir en sem betur fer er breiddin mikil í liðinu og þegar lykilmenn liðsins voru sprungnir þá komu leikmenn sem alla jafnan spila með B liði 2. flokks inná og kláruðu leikinn fyrir Selfoss.

Andri Már og Matthías áttu frábæra innkomu sem og Helgi Hlynsson í markinu. Þessir þrír leikmenn ásamt Herði Mássyni voru leikmennirnir sem innbyrtu sigrinum á lokakaflanum í gær. Aðrir lykilmenn liðsins byrjuðu vel en sprungu hver á fætur öðrum þegar leið á leikinn. Þá spilaði Ragnar lítið sem ekkert að þessu sinni sem vakti furðu enda afburðaleikmaður í þessum aldursflokki.

Skv. leikskýrslunni voru markaskorarar Selfoss.
Árni Steinn   6
Hörður Másson  5
Ragnar  5
Andri Már  3
Matthías  3
Eyþór  3
Ársæll  1
Óskar Kúld  1
Einar  1
Sigurður Már  1
Sveinbjörn  1

Skv. Arnari Gunnarssyni þá vörðu markmennirnir.
Ástgeir 4
Helgi Hlynsson 17/1

Dregið verður í 8 liða úrslit í bikarkeppni yngri flokkanna á mánudaginn kemur.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta