HSK-mót í meistaraflokki karla í handknattleik fór fram í Vallaskóla föstudaginn 18. desember s.l. Var þetta í þriðja skipti sem mótið er haldið eftir að það var endurvakið. Spilað var hraðmót þar sem hver leikur var 2x10 mín. Fjögur lið mættu til leiks, Árborg, Baldur, Dímon og Selfoss. Svo fór að lið Selfoss sigraði nokkuð örugglega. Í liðinu voru nokkrir liðsmenn úr 1. deildarliði Selfoss auk stráka úr 2. og 3. flokki. Baldur mætti með fjölmennt lið Flóamanna. Í hópnum voru m.a. nokkrir íþróttamenn sem hafa náð langt í öðrum greinum. Þá
mættu Dímonarmenn sprækir að vanda ásamt þéttu liði Árborgar. Úrslit leikja urðu eftirfarandi:
Selfoss - Dímon 14:9
Baldur - Árborg 11:9
Selfoss - Baldur 14:6
Dímon - Árborg 7:9
Árborg - Selfoss 10:11
Baldur - Dímon 11:5
Lokastaða:
1. Selfoss 6 stig
2. Baldur 4 stig
3. Árborg 2 stig
4. Dímon 0 stig
