Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

23.12.2009 | Handboltaakademía

B-liđ 3. flokks tapađi naumlega fyrir Gróttu

Strákarnir spiluðu frábæran leik og þá sérstaklega varnarlega. Áttu Gróttumenn fá svör við framliggjandi vörn Selfyssinga. Hins vegar spilaði Grótta einnig mjög góða flata 6-0 vörn enda talsvert hávaxnari leikmenn í liði Gróttu. Sóknarleikurinn gekk því kannski ekki neitt æðislega en engu að síður þá náðu Selfyssingar að spila af skynsemi og oft á tíðum að velja bestu leiðirnar í gegnum vörnina. Nýtingin hefði kannski mátt vera betri en það verður ekki flókið að laga það á komandi mánuðum þar sem aðalatriðið á þessum aldri er að læra að velja "rétt". Úrslitin eru ekki síst góð þar sem liðið er að stórum hluta skipað leikmönnum úr 4. flokki og síðuritari sá ekki betur en að það væru a.m.k. 2 ef ekki fleiri leikmenn úr A liði Gróttu með að þessu sinni. En það má færa leikmenn á milli A og B liða í þessum flokki séu A og B liðin í sitt hvorri deildinni.

Liðið er sem stendur í 2. sæti 2. deildar með 6 sigra, 1 jafntefli og 4 töp. Þeir eru því með 13 stig af 22 mögulegum það sem af er mótsins. Þess má þó geta að okkar menn hafa spilað flesta leiki liðanna í deildinni á meðan sum lið eru jafnvel ekki búinn að spila nema 4-5 leiki það sem af er tímabilsins, sem er frekar sérstakt.

Áfram Selfoss

 

 

 

 

 

 


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta