Bæði lið 4. flokks karla léku við Gróttu í gær í Vallaskóla. Báðir leikir voru mjög jafnir og spennandi og fóru leikar svo að í A-liðum vann Selfoss 30-29 en í B-liðum vann Grótta 22-26.
Í A-liðum var ljóst að erfiður leikur væri í vændum en Grótta er með 8 landsliðsmenn en Selfoss einungis 1. Selfyssingar mættu gríðarlega einbeittir í leikinn og náðu strax forystu 8-4 sem er mikilvæg bæting frá undanförnum leikjum en þar hefur Selfoss alltaf lent undir í byrjun. Gróttumenn minnkuðu muninn eftir því sem á leið og var Selfoss 13-12 yfir í hálfleik.
Í síðari hálfleik var jafnt upp í 16-16. Kemur þá leikkafli sem var frábær hjá Selfyssingum, vörnin þéttist svo um munaði og næstu fimm mörk Selfyssinga, 21-16. Grótta minnkaði muninn eftir það en náði aldrei að jafna. Selfyssingar voru mjög úrræðagóðir á lokakaflanum og fundu frábærar lausnir þegar mest á reyndi.
Gaman var að sjá liðið koma svo sterkt til baka eftir dapran leik um seinustu helgi. Þetta sýnir að mikill karakter er í liðinu og gaman að sjá leikmenn læra af mistökum sínum. Vörnin var þétt lengst af leik og fékk liðið mikið af hraðaupphlaupum í kjölfarið á því. Sóknarlega var liðið skipulagt, agað og mjög vel stjórnað.
Selfoss hefur því unnið 4 af 5 leikjum sínum í janúar, allt leikir gegn liðunum í efstu fjórum sætunum. Þeir eru að leika mun betur í þessum mánuði en fyrri hluta vetrar. Nú reynir á strákana að halda áfram, gera sig klára fyrir lokahluta tímabilsins og vera að toppa þegar úrslitakeppnin hefst í apríl.
B-liðið hefur átt í miklum vandræðum með Gróttu í vetur og töpuðu til að mynda með 19 mörkum er liðin mættust seinast. Að þessu sinni mættu drengirnir klárir og ætluðu að selja sig dýrt. Þeir léku öfluga vörn lengst af í fyrri hálfleik með frábæra markvörslu á bakvið sig. Þegar skammt var til hálfleiks var staðan 8-8 en Grótta kláraði hálfleikinn betur og leiddi 9-12 í hálfleik.
Síðari hálfleikur var ansi sérstakur. Grótta var alltaf á undan, en Selfoss neitaði að gefast upp. Oft minnkaði liðið muninn í eitt mark en kastaði tækifærunum alltaf frá sér á klaufalegan hátt. T.d. með glötuðum boltum og tveggja mínútna brottvísunum. Grótta vann leikinn 22-26, en munurinn var minni mestan hluta leiksins og átti Selfoss oft ágæta möguleika á að búa sér eitthvað til úr leiknum.
Þetta er mikil framför frá seinasta leik gegn sama liði. Þetta sýnir hve hugarfar getur skipt miklu, en með smá heppni hefði Selfoss getað náð einu stigi eða tveimur. Þeir þurfa að byggja á þessu og halda áfram að vinna því mikið býr í liðinu þegar allir leggjast á eitt líkt og í þessum leik. Nóg er eftir af vetrinum og ef þeir halda áfram svona er ljóst að þeir munu ná að bæta þónokkrum stigum á töfluna.
| Fjölnir | - | Selfoss | 14 | : | 32 |
| Selfoss | - | Víkingur | 22 | : | 20 |
| Selfoss | - | Þróttur | 35 | : | 22 |
| Afturelding | - | Selfoss | 26 | : | 25 |
| ÍBV | - | Selfoss | 23 | : | 25 |
| Selfoss | - | ÍR | 32 | : | 28 |
| Selfoss | - | Fjölnir | 36 | : | 17 |
| Víkingur | - | Selfoss | 30 | : | 32 |
| Selfoss | - | ÍBV | 33 | : | 29 |
| Þróttur | - | Selfoss | 44 | : | 20 |
| Selfoss | - | Afturelding | 32 | : | 23 |
| ÍR | - | Selfoss | 30 | : | 28 |
| Víkingur | - | Selfoss | 27 | : | 33 |
