Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

1.2.2010 | Handboltaakademía

Sigur á Ţrótti í 1. deild

Það var ljóst strax í upphafi í hvað stefndi. Selfoss tók strax öll völd á vellinum og voru þeir komnir með 6 marka forystu áður en hálfleikurinn var hálfnaður. Þrátt fyrir að liðið hafi misnotað talsvert af upplögðum marktækifærum var staðan í hálfleik 9-19 fyrir okkar menn. Í síðari hálfleik þá hélt liðið áfram að spila af krafti og einbeitingu og smám saman minnkaði mótspyrna heimamanna og leikurinn endaði sem áður segir með 24 marka sigri Selfoss, 20-44.

Það var gaman að sjá liðið einbeitt í 60 mínútur og spila af sama krafti allan tímann. Aldrei var slegið af né gefið eftir. Það var hvergi veikan blett að finna á liðinu og ekkert hægt að setja útá nema þá einna helst hvað mörg hraðaupphlaup misfórust en a.m.k. 8-10 hraðaupphlaup enduðu með skoti í tréverkið eða framhjá.

Sebastian gat leyft sér að rúlla liðinu vel. Þannig spilaði Atli Kristinsson t.d. ekkert í fyrri hálfleik. Enginn leikmaður spilaði meira en 40 mín. og langflestir spiluðu 20-30 mín. Þá spiluðu Birkir Fannar Bragason og Andri Már Sveinsson sinn fyrsta leik með M.fl. á þessu keppnistímabili. Það voru alls fimm breytingar á leikmannahópnum frá síðasta leik. Einar Héðinsson, Matthías Halldórsson, Hörður Bjarnason, Baldur Þór Elíasson og Sebastian voru ekki í leikmannahópnum að þessu sinni og í þeirra stað komu Eyþór Lárusson, Birkir Fannar Bragason, Óskar Kúld Pétursson, Ársæll Ársælsson og Andri Már Sveinsson.

Markaskor og markvarsla:

Ragnar  12

Hörður (Sjóli)  7

Atli  7

Guðni  4

Árni Steinn  4

Mikalonis  3

Ársæll  3

Eyþór  1

Helgi  1

Ívar  1

Andri Már  1

Ástgeir varði 14 skot í fyrri hálfleik (61%)

Birkir varði 14 skot í seinni halfleik (56%)

 

Næsti leikur er á heimavelli á móti UMFA næstkomandi föstudag, 5. febrúar, kl. 19:30.
Heimasíðan biður ALLA sem tök hafa á því að koma og styðja liðið til sigurs í toppslagnum.

Áfram Selfoss

 

 

 


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta