Selfoss-2 í 2. flokki (91-liðið) vann í gærkvöldi gesti sína úr Garðabæ á ótrúlegan hátt. Örn Þrastarson skoraði sigurmarkið hálfu sekúndubroti fyrir leikslok. Sellfoss vann 28-27 eftir að hafa verið undir 12-16 í hálfleik.
Stjarnan hafði frumkvæði lengstum og leiddi megnið af leiknum, en Selfoss komst þó af og til yfir. Til að mynda 19-17 og 25-24. Stjörnumenn svöruðu þá með þremur mörkum og komust yfir 25-27. Selfyssingar fengu vítakast er 50 sekúndur voru eftir og úr því skoraði Örn Þrastarson og munurinn þar með orðinn eitt mark. Selfyssingar náðu að stela boltanum og Trausti Eiríksson geystist upp og náði að jafna 25 sekúndum fyrir leikslok. Stjörnumenn skutu á markið í tvígang á síðustu 10 sekúndunum, en í hvorugt skiptið var það mark þar sem Sverrir Andrésson varði bæði skotin. Hann náði í knöttinn og sendi langa sendingu fram á Örn sem skoraði eins og áður var lýst. Selfyssingar fögnuðu gríðarlega í leikslok og mega vel við una. Loksins var lukkan á þeirra bandi.
Skyttur Selfoss áttu dapran dag sóknarlega. Orri og Hörður gerðu saman 6 mörk úr 25 tilraunum, en bættu það upp í vörninni all verulega. Varnarleikur liðsins var frábær og ekki skemmdi stórleikur Sverris í markinu fyrir. Vörn liðsins var léleg fyrir áramót en hefur tekið stakkaskiptum og er nú mun betri. Það hefur skilað sér því liðið hefur unnið alla þrjá leiki sína núna á nýju ári. Ekki er það verra að vinna A lið Stjörnunnar með 4 landsliðsmenn innanborðs, en Selfoss engan.
Allt Selfossliðið á hrós skilið fyrir baráttu, vilja og dugnað. Aldrei gefast þeir upp og trúa alltaf á verkefnið. Vörnin var eins og áður sagði frábær og með þannig vörn og markvörslu er alltaf möguleiki á sigri þó sóknarleikurinn gangi ekki sem skildi. Það er síðuritara mikil ánægja að sjá þessa stráka spila. Þeir leggja sig alltaf fram og ef Selfoss-1 í 2.flokki væri búið að leika af sama ákafa væri það líklega taplaust.
Það vakti athygli síðuritara að aðeins EINN leikmaður úr Selfoss-1 sá sér fært að mæta á leikinn. Helgi Hlynsson mætti og leysti starf ritara með sóma. ENGINN annar leikmaður úr Selfoss-1 starfaði við leikinn eða taldi það skyldu sína að horfa á leikinn og hvetja félaga sína og samherja til sigurs, ekki einu sinni fyrirliði liðsins fyrir áramót lét sjá sig. Þetta þykir síðuritara leitt og finnst þetta vægast sagt dapurt gagnvart þeim er léku í gær. Þeir sem ekki mættu í gær misstu af frábærum leik með mikilli dramatík og ótrúlegum lokamínútum. Þeir verða að eiga það við sig.
Tölfræði:
Örn 9 mörk og 5 brotin fríköst
Trausti 4 mörk, 3 stolnir og 7 brotin fríköst
Orri 3 mörk, 6 stoðsendingar og 11 brotin fríköst
Hörður 3 mörk, 5 stoðsendingarog 7 brotin fríköst
Anton 3 mörk
Einar 2 mörk
Andri 2 mörk
Aðalsteinn 1 mark
Sigurþór 1 mark og 5 brotin fríköst
Sverrir varð 23 skot
