Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

5.2.2010 | Handboltaakademía

92-drengir međ sigur á ÍR

Selfyssingar í 92-liði 3. flokks unnu í gærkvöld gesti sína úr Breiðholtinu. Eftir að ÍR-ingar höfðu verið mun sterkari allan fyrri hálfleikinn komust heimamenn yfir undir lok hans og leiddu í hálfleik 15-13. Selfoss lék illa í fyrri hálfleik og töpuðu leikmenn boltanum oft afar klaufalega. Í síðari hálfleik lagaðist leikur liðsins lítið eitt og eftir að Selfoss náði loks þriggja marka forustu létu þeir hana ekki af hendi heldur juku muninn í átta mörk og urðu lokatölur 34-26.

Selfyssingar náðu sér margir hverjir ekki á strik. Anton og Einar eiga mikið inni en komu þó vel upp í síðari hálfleik. Ingvi nýtti færin sín afar illa. Hermann átti aftur á móti frábæra innkomu í markinu og vóg hans framlag afar þungt á metunum. Þá átti Magnús góðan leik sóknarlega en varnarlega var hann stundum út á þekju. Ketill átti stórleik og þá átti Árni Felix sinn besta leik á tímabilinu. Varnarleikur liðsins var góður á köflum sem skilaði sér í 14 færri mörkum en í síðasta leik liðsins.

Síðuritara þótti Arnar þjálfari heldur neikvæður í leiknum og fannst hann mega vera aðeins upplitsdjarfari. Það vonar ritari a.m.k. að svo verði fyrir leikinn á morgunn gegn Þór sem er á Selfossi kl. 18 í Vallaskóla. Dómgæslan var í öruggum höndum Jóns Ragnars og Helga Héðins.

Tölfræði:

Ketill 8 mörk, 3 fráköst og 6 brotin fríköst

Anton 8 mörk, 9 brotin fríköst og 3 fráköst

Magnús 5 mörk og 9 brotin fríköst

Einar 5 mörk, 9 stoðsendingar, 6 stolnir, 6 tapaðir og 4 brotin fríköst

Árni Felix 5 mörk, 5 stoðsendingar og 7 brotin fríköst

Ingvi 3 mörk, 4 tapaðir og 14 brotin fríköst

Axel varði 1 skot og fékk á sig 6

Hermann varði 16 og fékk á sig 20


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

  • Mfl. karla 1. deild 2009-2010:

Fjölnir -  Selfoss 14 : 32
Selfoss -  Víkingur   22 : 20
Selfoss -  Þróttur 35 : 22
Afturelding  -  Selfoss 26 : 25 
ÍBV -  Selfoss 23 : 25
Selfoss -  ÍR 32 : 28
Selfoss -  Fjölnir 36 : 17
Víkingur -  Selfoss 30 : 32 
Selfoss - ÍBV 33 : 29
Þróttur - Selfoss 44 : 20
Selfoss - Afturelding 32 : 23
ÍR - Selfoss 30 : 28
Víkingur - Selfoss 27 : 33

byko.islyfogheilsa.iswww.olis.iswww.orkusalan.islandsbankinn.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta