Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

6.2.2010 | Handbolti

Mikilvćgur sigur á Aftureldingu

Leikurinn byrjaði samt mjög illa hjá Selfoss liðinu. Varnarleikurinn var í molum og markvarslan engin. Sóknarleikurinn staður og öflug vörn gestanna stöðvaði allar tilraunir Selfoss til að ná sér á strik. Gestirnir komust í 1-4 og 2-7 og loks 4-9. Þá tóku Selfyssingar leikhlé og skiptu um vörn og náðu upp stemmningunni með hjálp frábærra stuðningsmanna í stúkunni. Selfoss breytti stöðunni í 8-9 og 10-10 og fékk þá 2 tækifæri einum leikmanni fleiri til þess að komast yfir en fóru illa að ráði sínu. Gestirnir náðu aftur yfirhöndinni og leiddu í hálfleik 13-15. Varnarleikur liðsins í fyrri hálfleik var mjög slakur og aðeins 3 skot varin hjá Sebastian og Birki sem leysti hann af um miðjan fyrri hálfleikinn. Nánast öll mörk gestanna voru úr opnum færum en samvinnan á milli varnar og markmanna var engin. Sóknarleikurinn var þó smám saman að hrökkva í gang þannig að það var ljóst að heimamenn höfðu þrátt fyrir allt komið sér vel inn í leikinn aftur eftir þessa slæmu byrjun.

Það hefur líklega engan grunað það sem kom svo í síðari hálfleik. Það var ljóst strax frá byrjun hans að eitthvað hafði gerst í varnarleik liðsins. Gestirnir náðu aðeins að skora 3 mörk fyrstu 10 mín. í hálfleiknum, 1 næstu 10 mín. og loks 4 síðustu 10 mín.  Þessar fyrstu 20 mín. síðari hálfleiks var varnarleikurinn stórkostlegur og markvarsla Birkis fyrir aftan mjög góð. Hann varði 13 skot í síðari hálfleik og fékk aðeins á sig 8 mörk. Öflugir sóknarmenn gestanna fundu enga leið framhjá vörn okkar manna. Smám saman jókst munurinn þar til gestirnir tóku leikhlé í stöðunni 24-19 og 10 mín. til leiksloka. Þeir breyttu um vörn og komu mjög framarlega á völlinn eins og þeir gerðu á Varmá þegar þeir stálu sigrinum á lokakaflanum. Í þetta skipti var Selfoss liðið vel undirbúið og átti ekki í neinum vandræðum með að leysa þetta og jók muninn jafnt og þétt þar til að það stóð 32-23 á töflunni. Frábær sigur á þessu sterka liði Aftureldingar.

Erfitt er að velja einhvern úr sem mann leiksins en margir geta gert tilkall til þess að þessu sinni. En það er einmitt þannig sem við viljum hafa það. Ragnar skoraði 13 mörk og Atli 7. Helgi skoraði 5 og stjórnaði sókninni mjög vel. Þá átti Ívar frábæra innkomu og setti 3 mörk á mjög mikilvægum augnablikum. Ómar og Baldur áttu ótrúlegan dag í miðri vörninni í síðari hálfleik og loks átti Birkir frábæran síðari hálfleik. Aðrir leikmenn skiluðu sínum hlutverkum einnig mjög vel og unnu oft mikla vinnu sem ekki er eins áberandi en engu að síður mikilvæg eins og til dæmis að ná fráköstum og lausum boltum sem skipta miklu máli í heildarmyndinni.

Þjálfari liðsins hafði þetta að segja um leikinn:
"Góður leikur af okkar hálfu það er ljóst. Undirbúningurinn gekk upp og leikmannahópurinn var einbeitur alla vikuna. Ég sé mikil þroskamerki á liðinu og það er ljóst að við erum ekki lengur efnilegir strákar heldur fullvaxta lið. Við byrjum illa en höldum ró okkar og í hálfleik var bara farið í gegnum það sem þurfti að laga. Þetta getur verið svona þegar menn eru einbeittir og halda sig við það sem búið er að leggja upp með. Það er stóra skrefið sem við höfum tekið síðan í fyrra. Við koksuðum á öllum stóru leikjunum í fyrra þegar allt var undir. EN ég minni á að þetta er bara EITT skref í verkefninu. Það eru 7 verkefni eftir og við megum ekki gleyma okkur í þessum sigri of lengi. Menn verða að vera fljótir á jörðina aftur og það verður mitt hlutverk að sjá til þess. Næsti leikur er ekkert síður mikilvægur en þessi var. Það er nóg eftir af þessu móti og það er alveg jafn stutt niður og upp. Við erum ekki búnir að vinna neitt ennþá."

Markaskorarar Selfoss:

Ragnar 13/4

Atli 7

Helgi 5

Ívar 3

Baldur 2

Árni Steinn 2

Birkir varði 14 skot af 26 (54%)

Sebastian varði 2 skot af 13 (15%)

Næsti leikur er á útivelli á móti ÍR næsta þriðjudag. Við vonumst auðvitað til þess að einhverjir Selfyssingar sjái sér fært að mæta á leikinn til þess að styðja liðið í næsta skrefi liðsins í átt að úrvalsdeildarsæti.

Áfram Selfoss!


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

  • Mfl. karla 1. deild 2009-2010:

Fjölnir -  Selfoss 14 : 32
Selfoss -  Víkingur   22 : 20
Selfoss -  Þróttur 35 : 22
Afturelding  -  Selfoss 26 : 25 
ÍBV -  Selfoss 23 : 25
Selfoss -  ÍR 32 : 28
Selfoss -  Fjölnir 36 : 17
Víkingur -  Selfoss 30 : 32 
Selfoss - ÍBV 33 : 29
Þróttur - Selfoss 44 : 20
Selfoss - Afturelding 32 : 23
ÍR - Selfoss 30 : 28
Víkingur - Selfoss 27 : 33

byko.islyfogheilsa.iswww.olis.iswww.orkusalan.islandsbankinn.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta