Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

7.2.2010 | Handboltaakademía

Selfoss lék í 3.flokki í gćr

Þórsarar sóttu Selfyssinga í 3.flokki heim í gærkvöld og unnu 33-36 eftir mikinn barning. Gestirnir höfðu alltaf frumkvæðið í leiknum og höfðu yfir 18-20 í hálfleik. Þetta var fyrsta tap 92-liðsins á heimavelli á tímabilinu til þessa.

Afleitur varnarleikur og döpur markvarsla eiga stóran þátt í þessu tapi liðsins. Síðuritari fékk að horfa á leikinn af myndbandi og taldi þar 20 misnotuð dauðafæri. Þá er verið að tala um algjör dauðafæri, hraðaupphlaup, hornafæri (afar opin og góð) og línufæri. Úr góðum hornafærum var Selfoss með nýtinguna 7/18 og alls níu sinnum þorðu ekki hornamennirnir inn vegna ótta við að misnota skot sín. Það er því skoðun síðuritara að þrátt fyrir lélegan varnarleik sem og markvörslu þá léku heimamenn nógu vel til að vinna. En ef færin eru ekki nýtt þá fer eins og í gær.

Þórsarar fá sem dæmi eitt færi úr hægra horni, eitt úr því vinstra og eitt af línu. En Selfyssingar aragrúa góðra færa. Selfyssingar léku mun betri handbolta þar sem þeir voru að fá færi úr öllum stöðum á meðan sóknarleikur Þórsara byggist upp á því að tveir menn skjóti langskot. En svona fór þetta og þurfa heimamenn að taka sig saman í andlitinu. Árni Felix lék afar vel í liði Selfoss sem og Einar en Þórsarar réðu engan veginn við hann og tóku hann úr umferð megnið af leiknum. Það leystu Selfyssingar vel fyrir utan áðurnefnda nýtingu á dauðafærum. Aðrir leikmenn þurfa verulega að taka sig saman í andlitinu.

Næsti leikur liðsins er gegn Gróttu á útivelli næsta laugardag kl.15.30.

 Mörk

Einar 9

Felix 7

Toni 6

Ketill 5

Ingvi 3

Maggi 3

Axel varði 7 en fékk á sig 22

Hemmi varði 7 en fékk á sig 14


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta