A og B lið 4. flokks karla léku á höfuðborgarsvæðinu í gær. B-liðið mætti efsta liði deildarinnar, Stjörnunni, og lék góðan leik lengst af. Það dugði þó ekki og Stjarnan vann 21-18. A-liðið mætti Haukum. Eftir mjög rólega byrjun vannst 22-27 sigur.
B-liðið lék á undan í Mýrinni í Garðarbæ. Fyrri hálfleikur var mjög slakur sóknarlega og skoraði liðið einungis 6 mörk í hálfleiknum. Vörnin var hins vegar mjög góð og fengu þeir bara 11 á sig, 4 þeirra marka komu eftir afar ódýr hraðaupphlaup heimamanna.
Í seinni hálfleik bætti liðið sóknarleik sinn og minnkaði muninn aðeins. Þeir voru oft alveg við það að ná að komast upp að heimamönnum en náðu aldrei að stíga skrefið til fulls. Fimm marka munur í hálfleik reyndist of mikið þegar upp var staðið og lokatölur urðu 21-18.
Liðið lék sinn lang besta varnarleik í vetur. 21 mark á sig gegn mjög vel skipulögðu handboltaliði og sum þeirra úr hraðaupphlaupum. Í vörninni bar Skúli af en hann hefur ekki leikið svona vel varnarlega í vetur. Þá léku Egidijus, Þórður og Sævar mjög viðunandi varnarleik. Í markinu varði Sölvi mjög vel. Liðið bætti sóknarleik sinn mikið í síðari hálfleik, gekk þá boltinn betur á milli manna og fékk liðið fjölmörg opin færi t.d. af línunni.
Enn er liðið í hörkuleik gegn liðunum á toppnum. Það býr mikið í Selfoss liðinu sem er að bæta sig jafnt og þétt en liðið getur greinilega keppt við hvaða lið sem er. Í síðasta leik var sóknin mjög góð og núna var það vörnin. Um leið og liðið nær báðum þessum þáttum inn í einu verður erfitt að stoppa þá.
A-liðið mætti illa stemmt til leiks og kostaði það auðvitað vandræði. Haukar komust í 7-3 eftir 9 og hálfrar mínútna leik. Vakna strákarnir þá og jafna einungis þremur mínútum síðar í 7-7. Vörnin var slæm hjá liðinu framan af og þegar 8 mínútur voru eftir af hálfleiknum komust Haukar í 12-10. Breytti liðið þá vörn sinni og fór Gísli Axels í hafsent og Janus Daði fyrir framan í vörninni. Við það gjörbreyttist leikur liðsins varnarlega. Selfoss skoraði seinustu fjögur mörk hálfleiksins og 12-14 yfir í hálfleik.
Okkar menn héldu áfram í seinni hálfleik og fóru í 16-21. Á um 20 mínútna kafla fékk liðið seinungis 4 mörk á sig og gerði það útslagið í þessum leik. Lokatölur urðu 22-27 sigur Selfoss.
Sverrir Pálsson átti stórleik, sérstaklega sóknarlega þar sem hann skoraði 11 mörk úr 14 skotum auk þess að eiga 5 stoðsendingar. Þeir Jóhannes Snær og Daníel áttu einnig mjög góðan leik í sókn. Jóhannes "Mímí" skoraði 4 og átti fínar stoðsendingar og Daníel gerði 6 mörk en þeir brenndu vart af skoti. Í vörninni lék Gísli Axels afar vel og kom á mikilli festu þegar mest þurfti. Janus Daði lék vel þegar hann var fyrir framan í vörninni. Hermann varði 14 skot í síðari hálfleik en hann háði erfiða baráttu við harpix klessur framan af leik og var nokkra stund í gang.
Það sást bersýnilega í gær hvað gerist ef strákarnir mæta ekki klárir í leik. Nær allan fyrri hálfleikinn voru þeir að elta og hefði þetta getað reynst dýrt. Þeir þurfa að læra af þessu og ná undirtökunum strax í leik eins og þessum.
| Fjölnir | - | Selfoss | 14 | : | 32 |
| Selfoss | - | Víkingur | 22 | : | 20 |
| Selfoss | - | Þróttur | 35 | : | 22 |
| Afturelding | - | Selfoss | 26 | : | 25 |
| ÍBV | - | Selfoss | 23 | : | 25 |
| Selfoss | - | ÍR | 32 | : | 28 |
| Selfoss | - | Fjölnir | 36 | : | 17 |
| Víkingur | - | Selfoss | 30 | : | 32 |
| Selfoss | - | ÍBV | 33 | : | 29 |
| Þróttur | - | Selfoss | 44 | : | 20 |
| Selfoss | - | Afturelding | 32 | : | 23 |
| ÍR | - | Selfoss | 30 | : | 28 |
| Víkingur | - | Selfoss | 27 | : | 33 |
