Það var augljóst strax í upphafsókn liðsins að eithvað var ekki eins og það átti að vera. Leikur liðsins var svo hægur og ómarkviss að það var eins og að horfa á allt aðra íþrótt. Varnarleikurinn var lítið skárri þar sem menn stóðu í hælana og hreyfðust vart úr stað. Liðið var óþekkjanlegt sama í hvaða stöðu var litið. Selfoss tók þó smá kipp þegar leið á hálfleikinn og löguðu stöðuna í 13-9 rétt fyrir hálfleik.
Þetta hefur nú svo sem gerst í síðustu leikjum að liðið byrjar illa en kemur svo á blússandi siglingu í síðari hálfleikinn en ekki í þetta skipti. Eftir tæplega 10 mín. leik var staðan orðin 20-12 fyrir ÍR. Þá var eins og menn hafi rankað við sér og var allt sett á fullt og aðeins 6 mín. síðar var staðan orðin 20-19 og nóg eftir af leiknum. Selfoss spilaði svo sem sæmilegan leik síðasta korterið eða svo en þá var ÍR liðið komið með sjálfstraustið sem það þurfti til að klára leikinn og þrátt fyrir allar tilraunir endaði leikurinn með tapi 30-28.
Það var ótrúlegt að sjá suma lykilmenn liðsins algjörlega andlausa, áhugalausa og einbeitingarlausa í leiknum. Sumir unnu sig inn í leikinn og náðu að bjarga andlitinu, sumir voru teknir út af og en aðrir voru hreint út sagt lélegir allan tímann sem þeir spiluðu. ÍR liðið þurfti engan stórleik að þessu sinni. Það eina sem heimamenn þurftu til þess að innbyrða sigurinn var barátta og leikgleði og af því höfðu þeir nóg.
Það lá því beinast við að spyrja Sebastian hvort honum hefði ekki mistekist að ná liðinu niður á jörðina eftir leikinn á föstudaginn:
"Já og nei. Já ef þú horfir á frammistöðuna í leiknum. Nei að því leiti til að ég og Finnbogi (aðst.þjálfari) vorum búnir að leggja áherslu á það og vara við því að þetta væri eini sjénsinn sem þeir hefðu til að vinna okkur og því miður hafa leikmenn ekki tekið mark á því. Æfingarnar fyrir leikinn gáfu alls ekki tilefni til þess að hafa áhyggjur af því að þetta myndi gerast og því verð ég að álykta sem svo að leikmenn hafi hreinlega ekki tekið verkefnið né orð okkar alvarlega. Það versta sem íþróttamaður getur gert sér er að svíkja sjálfan sig og því miður er ljóst að sumir leikmenn þessa liðs brugðust algjörlega í andlegum undirbúningi sínum fyrir þennan leik. Þeir verða eiga það við sjálfa sig."
En verður þetta tap ekki dýrt í baráttunni um sæti í úrvalsdeild þegar upp er staðið:
"Það kemur í ljós í næstu leikjum. Við erum enn í bílstjórasætinu og með örlögin í okkar hendi þannig að við þurfum ekki að treysta á neinn nema sjálfa okkur. Ég hélt að við værum komnir yfir það að spila svona leiki og búnir að læra okkar lexíu í fyrra og árið þar á undan, en..? Ég vona bara að ég þurfi ekki að éta það ofan í mig í vor að við séum orðnir fullvaxta lið."
"Mig langar bara að bæta því við í lokin að þrátt fyrir fína dómgæslu í leiknum þá verð ég lýsa yfir áhyggjum af því að ef að varnarmenn í þessari deild eiga að fá að spila vörn á móti Ragnari eins og gert var í gær án þess að fá hvorki gult spjald eða brottvísun þá á hann alls ekki von á góðu í næstu leikjum."
Markaskorarar:
Atli 6
Guðni 4
Ívar 3
Hörður 3
Árni Steinn 3
Ragnar 3/1
Sjóli 2
Helgi 2
Einar 2
Sebastian varði 10 skot þar af 2 víti (30%).
Birkir náði ekki að verja skot þann tíma sem hann spilaði.
