Selfoss - Akureyri: 29-29 (14-15)
Akureyri byrjaði leikinn betur og höfðu frumkvæðið í fyrri hálfleik. Staðan hefði átt að vera jöfn í hálfleik en Akureyri náði að skora mark eftir að flautan gall en dómarar leiksins voru þeir einu sem voru sannfærðir um að markið væri löglegt og því var staðan 14-15 í hálfleik. Þetta umdeilda mark átti þó eftir að skipta máli þegar upp var staðið. Selfoss tók öll völd á vellinum í síðari hálfleik og voru komnir með góða stöðu þegar 7 mín. voru eftir af leiknum en þá leiddu þeir 28-24. Þá féllu þeir í þá gryfju að reyna að verja forskotið sem er aldrei vænlegt til árangurs og Akureyri skoraði hvert markið á fætur öðru úr hraðaupphlaupum þar til að þeir jöfnuðu 29-29. Selfoss fékk svo síðasta marktækifæri leiksins en brendu af úr opnu færi fyrir miðju marki og jafntefli staðreynd.
Stjarnan - Selfoss: 35-33 (18-16)
Annað árið í röð voru Selfyssingar aðeins einum leik frá því að komast í höllina en því miður eins og undanfarin 7 ár þá hefur liðið alltaf þurft að spila Bikarleikina á útivelli. Stjörnumenn mættu grimmir til leiks og þrátt fyrir að lenda 1-4 undir þá voru þeir miklu ákveðnari og þá sérstaklega í varnarleiknum. Stjarnan tók Ragnar úr umferð frá byrjun sem að Selfoss leysti auðveldlega enda orðnir vanir því að leysa þessa stöðu. Sóknarleikurinn gekk ljómandi vel enda komu rúmlega 10 mörk af línunni. Þá var nýtingin góð og markmenn Stjörnunnar náðu sér ekki á strik. Hins vegar þá vörðu markmenn Selfoss 21 skot í leiknum og því er von að spurt sé hvað hafi farið úrskeiðis í leiknum. 33 mörk skoruð, 65% skotnýting og 21 skot varið ? Svarið er einfalt. Varnarleikur liðsins var afspyrnuslakur sama hvort það var spilað framarlega eða aftarlega. Stjarnan tók nánast öll fráköst og skoruðu hvað eftir annað án þess að hafa nokkuð fyrir því að opna vörnina. Nánast hver einasti varnarmaður tapaði maður á mann sem er eitthvað sem þekkist varla hjá Selfossliðinu enda vanir því að vera sterkari aðilinn þegar kemur að því að mæta sóknarmönnum einn á einn.
Liðið er því úr leik í Bikarnum og á ekki möguleika á deildarmeistaratitlinum þar sem það situr nú í 5-6 sæti af 8 liðum. Það er því ljóst að liðið verður að treysta á það að eiga góða úrslitakeppni til þess að fara ekki tómhent út úr vetrinum, þ.e.a.s. komist liðið í úrslitakeppnina á annað borð.
