Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

19.2.2010 | Handboltaakademía

Selfoss-92 vann FH í gćr

FH-ingar úr Hafnarfirði mættu á Selfoss í gær og öttu kappi við heimamenn í 3. flokki. Leikurinn var jafn og spennandi og afar skemmtilegur á köflum að mati síðuritara. Selfoss hafði sigur 34-31 eftir mikinn barning. Í hálfleik stóð 17-16 Selfyssingum í vil.

Heimamenn byrjuðu betur og náðu mest fimm marka forustu í 9-4. FH náði að jafna 13-13, en Selfoss leiddu svo í hálfleik með einu marki. Í síðari hálfleik var munurinn 1-3 mörk, en FH náði að jafna í tvígang. Ekki brotnuðu okkar menn við það og náðu að knýja fram sigur 34-31.

Allt annað var að sjá til liðsins en í síðustu tveimur leikjum gegn Þór og Gróttu og þá ekki síst hvað varðar varnarleik, leikgleði og baráttu. Enda uppskar liðið samkvæmt því. Nú er lag fyrir Selfoss sem þeir verða að nýta sér.

Einar gerði 10 mörk, 3 stolnir og 5 brotin fríköst, Keli 6, Toni 6 og fimm stoðsendingar, Felix 3 mörk og 11 stoðsendingar, Gylfi 3 mörk og 15 brotin fríköst, Ingvi 3 og 5 brotin fríköst, Maggi 2 mörk og Geiri 1 mark.

Hermann varði 14 skot og fékk á sig 25 en Axel varði 6 skot og fékk á sig 6.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta