Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

21.2.2010 | Handbolti

4. flokkur međ sigur og jafntefli

Bæði liðin í 4. flokki karla léku um helgina. B-liðið fór í Kaplakrika og náði í 19-19 jafntefli gegn FH eftir að hafa verið í nær vonlausri stöðu stuttu fyrir leikslok. A-liðið vann ÍR í Austurbergi 31-34, en sá leikur var jafn allan tímann.

B-liðið byrjaði illa og var langt frá sinni eðlilegu getu fyrstu mínúturnar gegn FH. Þeir lentu 9-4 undir, en vöknuðu þá svo um munaði. Þeir minnkuðu muninn hratt og örugglega og voru undir 11-10 í hálfleik. Liðið kláraði þá mun betur í vörninni og í sókninni var samspil með línumönnum afar gott.

Selfoss komst svo yfir 12-13 í síðari hálfleik og hafði boltann í þeirri stöðu. Á næstu mínútum þar á eftir einkenndist leikur liðsins hins vegar af miklum klaufagangi. Liðið missti boltann oft og gerði mörg byrjendamistök. Þegar skammt var til leiksloka var staðan allt í einu orðin 18-13 fyrir FH og staðan nánast vonlaus. Selfyssingar gáfust þó alls ekki upp og náðu jafntefli 19-19 í leiknum með ótrúlegum lokakafla.

Þetta er þriðja stig strákanna í vetur og hafa öll stigin komið eftir áramót. Spilamennska liðsins hefur farið mjög upp á við eftir því sem á hefur liðið í vetur og seinusta mánuð og hálfan hafa þeir verið að spila mjög góða leiki. Tveir leikir eru eftir á Íslandsmótinu og ef þeir halda áfram eru þar 4 stig sem þeir munu bæta við.

Í liði Selfoss var Þórður Jóhann öflugur. Eftir rólega byrjun var hann ill viðráðanlegur seinustu 35 mínútur leiksins. Hjörtur og Skúli léku vel og það sama gerði Sölvi í markinu. Þá átti Ísak prýðis leik en hann gerði m.a. seinustu tvö mörk liðsins í leiknum og reyndist hetja dagsins. Fleiri leikmenn lögðu þó mikið til liðsins og eiga eins og aðrir hrós skilið fyrir að gefast aldrei upp.

A-liðið mætti ÍR. Leikurinn var jafn allan tímann, en Selfoss var þó alltaf á undan. Í fyrri hálfleik náðu strákarnir aldrei að skilja ÍR-ingana frá sér og munurinn var mest tvö mörk. Jafnt var í hálfleik 14-14.

Selfoss náði strax forystu í síðari hálfleik. Þeir náðu tvívegis að komast í fjögurra marka forskot í síðari hálfleik og voru manni fleiri bæði í skiptin í þeirri stöðu. Í stað þess að nýta liðsmuninn þá vann ÍR alltaf þá kafla og minnkaði muninn aftur. Leikurinn var því jafn til loka, en Selfoss hafði að lokum 31-34 sigur.

Afar sjaldséð er að Selfoss nýti ekki kaflana manni fleiri. Í leiknum var það þó ekki því að kenna að liðið fékk ekki færi heldur þveröfugt því Selfoss fékk alltaf afar góð tækifæri en brenndi þeim af. Þetta gerði það að verkum að liðið náði aldrei að slíta ÍR almennilega frá sér í leiknum og heimamenn því í séns til loka.

Sóknarleikur Selfoss var verulega góður í leiknum, sérstaklega í síðari hálfleik. Liðið skoraði úr 20 af 27 sóknum sínum í seinni hálfleik en fjórar af þessum sjö misheppnuðu voru 6 gegn 5. Strákarnir spiluðu frábærlega vel saman og geta þakkað því að hafa unnið leikinn því varnarleikur liðsins var eins og gatasigti. Þar voru fá fríköst brotin og náði liðið ekki upp baráttu og stemmningu sem er  nauðsynlegt til að varnarleikur gangi upp.

Janus Daði stjórnaði spili Selfoss mjög vel og átti til að mynda 13 stoðsendingar í leiknum. Jóhannes Snær gerði 6 mörk og átti fjórar stoðsendingar. Gísli Axels og Jóhann Erlings voru drjúgir í skyttunum og gerðu 6 mörk hvor. Þá var þáttur Sverris mjög  þýðingarmikill undir restina þar sem hann gerði góð mörk.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta