Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

22.2.2010 | Handboltaakademía

3. flokkur B lék heima gegn Haukum A

Á laugardag tóku heimamenn í 3. flokki B á móti Haukum A úr Hafnarfirði. Liðin leika í sömu deild þó að um B- og A-lið sé að ræða. Ljóst var að róðurinn yrði þungur fyrir okkar menn og sú varð raunin. Aldrei gáfust þó Selfyssingar upp og héldu í við gestina lengi vel. Eftir jafnan fyrri hálfleik þar sem leikar stóðu 14-16 lauk leiknum með öruggum sigri Hafnfirðinga 27-32.

Strákarnir hafa bætt sig jafnt og þétt í vetur og sprakk t.d. Árni Geir út í þessum leik og gerði hann 7 flott mörk. Þá stóð Jóhann Jóns sig vel og leysti nánast allar stöður vallarins af. Allir leikmenn lögðu sig mikið fram í leiknum og eiga hrós skilið.

Síðuritari getur ekki sagt skilið við þennan leik fyrr en hann hefur tjáð sig lítið eitt um framkomu Haukamanna í leiknum. Sumir leikmanna Hauka höfðu allt á hornum sér allan leikinn og eftir hann henti einn leikmaður Haukanna treyju sinni í annan dómara leiksins. Með réttu hefði þessi leikmaður átt að fá rautt spjald og eitthvað gott bann að mati ritara. Eftir aðeins tvær mínútur og 22 sekúndur var allt orðið vitlaust í húsinu vegna dómgæslu og fór þar fremstur í flokki íþróttamaður Tékkóslóvakíu 1989. Vakti þetta furðu margra sem í húsinu voru að taugaveiklun manna skildi vera þetta mikil. Þó vill síðuritari að það komi fram að þetta toppi ekki framkomu 3. flokks UMFA frá því fyrr í vetur, en þá voru liðnar 12 sekúndur af leiknum er þjálfari gestanna missti sig yfir þeim órétti er hann var beittur. Síðuritari veltir því fyrir sér hvernig sumir undirbúa lið sín fyrir kappleiki. Í einum leik hér fyrr í vetur í 3. flokki veittust feður nokkurra leikmanna andstæðinga Selfoss að dómurum leiksins þannig að vísa þurfti mönnum úr húsi. Það er alveg ljóst að svona framkoma hvetur menn ekki til þess að nenna dæma fyrir félagið sitt. Veltir síðuritari því einnig fyrir sér hvers vegna menn hagi sér svona. Er árangur Selfoss farin að ógna liðum af höfuðborgarsvæðinu? Hver veit, ekki ætlar síðurtari að fullyrða neitt þar um.

Helsta tölfræði:

Árni Geir 7 mörk

Jóhann Jóns 6 mörk

Jóhann Gy 5 mörk og 8 brotin fríköst

Siggi 2 mörk

Björn 2 mörk og 4 stoðsendingar

Gabríel 2 mörk og 9 brotin fríköst

Gísli Örn 1 mark

Gísli Ax 1 mark

Árni F 1 mark

Jóhann Br komst ekki á blað að þessu sinni

Janus átti 7 stoðsendingar og braut 8 fríköst

Jóhannes mímí kom ekki inn á.

Þá varði Bogi 16 skot


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta