Selfyssingar í 91-liðinu svokallað unnu ÍBV í gær örugglega 31-22 eftir að hafa leitt í hálfleik 17-10. Sigurinn var aldrei í hættu en frekar mikið vantaði upp á leikgleði drengjanna svo ekki sé fastara að orði kveðið. Sumir virkuðu í fýlu allan leikinn og fannst síðuritara það smita út frá sér. Þá nýttu sumir möguleika sína til að spila sig inn í leikinn afar illa.
Það gladdi þó augað að Matthías virðist vera að vakna af sínum tiltölulega langa Þyrnirósasvefni og skoraði 9 mörk með þrumuskotum, en slíkum skotum hefur síðuritari saknað. Sverrir varði vel í heildina en var í fýlu inn á milli, Ketill átti góða innkomu, herra Áreiðanlegur (Andri Karlsson) stóð sig vel og Örn var drjúgur. Aðrir eiga að geta betur en skiluðu þó hinum ágæsta leik svo allrar sanngirni sé gætt.
Mörk:
Matti 9, Örn 7, Trausti mímí 3, Karlsson 3, Andri Halls 2, Ketill 2, Steini 2, Þór 2 og Toni 1. Orri og Einar komust ekki á blað. Einar lék lítið en Orri lék vörnina vel. Sverrir varði 21 skot.
