Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

22.2.2010 | Handboltaakademía

Sigur á Víkingi í 1. deildinni

Allt annað var að sjá til liðsins en á móti ÍR í síðasta leik þess. Greinilegt að leikmenn hafa tekið það slys nærri sér og ákveðið að gefa ekkert minna en 100% í leikinn. Víkingur var fyrir leikinn það lið sem hafði fengið fæst mörk á sig í vetur og því var einstaklega gott hjá okkar mönnum að skora 33 mörk. Sérstaklega þegar horft er til þess að talsvert var um forföll í leikmannahóp liðsins vegna meiðsla og veikinda. En breiddin er mikil í félaginu og það komu bara aðrir leikmenn inn í hóp og stóðu sig vel.

Leikurinn byrjaði eins og hægt var að búast við af þessum liðum. Meiri barátta og ákafi en gæði. Víkingar náðu sér strax á strik í vörninni og náðu þá helst að skora úr hraðaupphlaupum. Sjálfum gekk þeim illa að opna vörn Selfyssinga þegar henni var stillt upp. Svona gekk þessi barningur fram eftir fyrri hálfleik og Víkingar alltaf 1-3 mörkum á undan. Selfoss tók svo góðan kipp í lok fyrri hálfleiks og náði frumkvæðinu sem reyndist mjög mikilvægt upp á síðari hálfleikinn.

Nú var Selfoss komið með tak á leiknum sem þeir slepptu aldrei það sem eftir var leiks. Leikmenn voru einbeittir og smám saman lagaðist sóknarleikur beggja liða og því var skorað meira í síðari hálfleik. Mest náðu okkar menn 4 marka forystu um miðjan síðari hálfleikinn en þá tóku Víkingar aftur kipp. Þeir minnkuðu muninn í 2 mörk og stutt bakslag í sókninni hjá Selfoss gerði áhorfendur áhyggjufulla. Þá kom Sebastian í markið og varði 6 skot og fékk aðeins á sig 3 mörk á þessum síðustu 9 mínútum leiksins auk þess sem að víkingar skutu yfir eða framhjá í upplögðum tækifærum a.m.k. tvisvar. Á sama tíma hrökk sóknarleikurinn aftur í lag og 6 marka sigur var staðreynd en það var ekki fyrr en á allra síðustu mínútum leiksins sem sú forysta náðist. Afar mikilvægur sigur fyrir Selfoss en Víkingar eru með eitt af betri liðum deildarinnar.

Allt liðið spilaði vel í sókn og vörn. Horna- og línumennirnir áttu stórleik en það komu alls 14 mörk úr þessum stöðum úr aðeins 16 skotum ásamt því að útispilararnir þrír, þeir Atli, Ívar og Ragnar, spiluðu góðan leik þrátt fyrir mikið álag og litla hvíld. Varnarleikurinn var ágætur og markvarslan í lagi. Liðið virkaði rólegt og einbeitt þrátt fyrir mikilvægi leiksins og héldu sig við þá leikaðferð sem greinilega hafði verið lagt upp með þrátt fyrir að það hafi gengið brösuglega í byrjun leiksins.

Markaskorarar Selfoss (í sviga fyrir aftan eru mörkin skv. leikskýrslu sem er kolröng):

Ragnar  9 (10)

Atli  7 (5)

Einar  5 (5)

Árni Steinn  4 (4)

Ívar  3 (4)

Ársæll  3 (2)

Hörður  1 (0)

Guðni  1 (1)

Mikalnois  0 (1)

Óskar Kúld  0 (1)

Bikrir varði 13 skot (37%)

Sebastian varði 6 skot (55%)

Nú kemur hlé á deildinni til 5 mars þar sem úrslitaleikur Bikarkeppninnar er spilaður um næstu helgi. Þá mætir liðið Fjölni á heimavelli. Þetta hlé kemur sér vel þar sem Ívar er að fara í sprautu á öxl í dag auk þess sem að  Baldur, Helgi, Mikalonis, Sebastian, Hörður og Einar sem eru annað hvort meiddir eða mjög tæpir hafa þá tækifæri til þess að jafna sig fyrir lokaátökin.

Áfram Selfoss

 


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta