Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

3.3.2010 | Handboltaakademía

2. fl. vann Víking á útivelli

Staðan í hálfleik var 9-14 fyrir Selfoss og var það fyrst og fremst öflugur varnarleikur og frábær markvarsla sem skilaði þessu forskoti í hálfleiknum. Í síðari hálfleiknum bættu okkar menn í til að byrja með og voru komnir með gott forskot þegar 20 mínútur voru eftir af leiknum. Þá tóku Víkingar við sér og náðu að minnka munninn í 3 mörk þegar um 9 mínútur voru eftir. Selfoss gaf þá aðeins í aftur og kláraði leikinn með 7 marka sigri.

Ástgeir var frábær í markinu og varði 24/1 skot og átti auk þess 3 stoðsendingar. Varnarleikurinn var mjög góður mestan hluta leiksins og áttu Víkingar í mestu vandræðum með að komast í opin færi og svo þegar það loksins tókst þá varði Ástgeir meirihlutann af þeim.

Sóknarleikurinn var hins vegar óvenju slakur að þessu sinni. Lítill hraði og mikið hik var til staðar nánast allan leikinn. Boltinn fékk svo sem að ganga en lítið var um að menn væru að sækja á vörnina af einhverjum krafti. Þá fóru okkar menn mjög illa með það þegar þeir voru einum og stundum tveimur leikmönnum fleiri. Það skipti því í raun ekki neinu máli hvort Víkingar voru 6,5 eða 4 í vörn árangurinn var áþekkur. Einhvern veginn þá náðu okkar menn þó að troða inn 29 mörkum og þar við sat.

Mörk Selfyssinga:

Ragnar 10/3

Hörður (Sjóli)  4

Matthías  4

Einar  3

Eyþór  3

Sveinbjörn  2

Óskar Kúld  2

Ársæll  1

 

 

 


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta