Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

7.3.2010 | Handbolti

Sigur og jafntefli hjá 4. flokki

Bæði liðin í 4. flokki karla léku gegn KA í Vallaskóla í gær. Síðuritari brá sér á völlinn en Selfoss náði í þrjú stig að þessu sinni. A-liðið vann 33-31 sigur eftir að hafa leitt 17-13 í hálfleik. B-liðið gerði jafntefli 26-26 í afar dramatískum leik en þeir voru 10-12 undir í hálfleik.

A-liðið byrjaði afleitlega og voru strákarnir ekki líkir sjálfum sér framan af. KA kemst í 1-4 eftir 4 mínútur og er staðan 5-8 eftir 11 mínútur. Bætir liðið þá varnarleik sinn sem  hafði, eins og tölurnar gefa til kynna, verið í molum. Selfoss komst 10-9 yfir, leiddi svo 14-11 og var 17-13 yfir í hálfleik.

Í seinni hálfleik var Selfoss framan af með góða forystu. Þeir voru 25-19 yfir og virtust ætla að vinna öruggan sigur. Hins vegar gerir liðið ekki út um leikinn þegar tækifæri var til þess. Þeir léku aldrei vörn í seinni hálfleik og minnkar KA í 26-25. Allt í einu var orðinn leikur. Selfoss nær aftur tökum, kemst þremur yfir og vann svo að lokum 33-31.

Síðuritari er hrifinn af sóknarleik Selfoss en þar er samspilið gott og eru leikmenn óeigingjarnir. Boltinn hjá þeim er skemmtilegur á að horfa. Varnarleikurinn olli mér þó vonbrigðum. Liðið fær t.d. á sig 18 mörk í seinni hálfleik (á 25 mínútum) en Selfyssingar voru að vinna enn sterkari lið en KA á varnarleik fyrst og fremst fyrir ekki svo löngu. Þetta þurfa þeir að laga fyrir úrslitakeppnina því þar kemur sóknarleikurinn einn og sér liðinu ekki nóg.

Síðuritari náði tali af Stefáni þjálfara þegar hann var á leið heim og spurði hann m.a. um þessa hluti. „Ég hef verið gríðarlega ánægður með strákana að undanförnu, en eftir áramót hefur liðið verið að spila mjög vel. Unnið 8 af 9 leikjum og bætt sig á mjög mörgum sviðum. Sóknarleikurinn verður betri með hverjum leiknum, sem og hraður leikur. Varnarleikurinn var afar góður í janúar en hefur dottið niður í síðustu leikjum. Það er alveg ljóst að það er hlutur sem við verðum að ná aftur í gang fyrir úrslitakeppni.“

B-liðið lék strax á eftir. Þeir komust yfir og leiddu framan af fyrri hálfleik. KA kláraði hálfleikinn hins vegar af mun meiri krafti og komst 10-12 yfir.

Selfyssingar bættu leik sinn sóknarlega mikið í seinni hálfleik. Liðið lék mun betur saman í sókninni nú en vörnin hins vegar lak of mikið. Selfoss náði strax forystunni 13-12 og var á undan lengi vel í hálfleiknum. Þegar skammt var til leiksloka leiddi Selfoss 26-25 og var með boltann. Liðið glatar boltanum og KA geysist upp þegar einungis nokkrar sekúndur voru eftir. Selfoss brýtur og 3 sekúndur eftir. KA var þá manni fleiri, þeir spila niður í horn og ná að jafna 26-26.

Strákarnir í B-liðinu hafa náð 4 stigum eftir áramót og eiga einn leik eftir í deild. Þá tekur við úrslitakeppni hjá þeim. 

Egidijus Mikalonis fór hamförum í leiknum og skoraði 11 mörk, 10 þeirra komu í seinni hálfleik þar sem hann var óstöðvandi. Skúli átti mjög fínan leikog gaf sig allan í leikinn en það kostaði reyndar mikinn fjölbreytileika af hnjaski. Leikmenn eins og Guðmundur J, Hjörtur og Þórður spiluðu vel en fleiri lögðu til liðsins meðmismunandi hætti.

Stefán þjálfari var ánægður með liðið, „Leikurinn var góður að mörgu leyti. Sóknarleikurinn t.d. verður sífellt betri. Það er mikill munur að leikmenn séu svekktir með að fá „bara“ jafntefli úr leik núna eftir að hafa verið nokkuð frá flest öllum liðum í byrjun vetrar. Það segir kannski mikið um breytinguna sem hefur orðið hjá okkur. Strákarnir eru eiga hrós skilið en þeir leggja hart af sér.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta