Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

8.3.2010 | Handboltaakademía

Fyrsta tap ársins hjá 91

Strákarnir í Selfoss-2 í 2. flokki þurftu að játa sig sigraða gegn Fram í Safamýri á laugardaginn síðastliðinn. 36-34 endaði leikurinn eftir að staðan var 19-16 í hálfleik fyrir heimamenn.

Síðuritari komst því miður ekki á leikinn þar sem hann var á Selfossi að fylgjast með 4. flokki leika gegn KA. En við upplýsingaöflun síðuritara komst hann að því að fyrri hálfleikur var jafn en í þeim síðari misstu okkar menn Framara níu mörk fram úr sér en náðu að komast inn í leikinn og minnka muninn í þrjú mörk en nær komust þeir þó ekki nema undir blálokin. Vörnin var kaflaskipt, góð á köflum en skelfing inn á milli. Bræðurnnir Þór og Orri léku góða vörn megnið af leiknum en lítið kom út úr þeim sóknarlega. Þar á Orri mikið inni. Sóknarlega drógu Örn og Andri Halls vagninn og þá lék Toni vel. Markvarslan í leiknum var afar döpur en þó ögn skárri hjá Axel sem kemur úr 3. flokki. Er þetta fyrsti leikurinn á tímabilinu sem Sverrir nær ekki 10 skotum eða fleirum.

Strákarnir eiga tvo leiki eftir, gegn UMFA heima og Gróttu úti. Liðið á enn möguleika á að ná öðru sætinu sem gæti gefið rétt á sæti í úrslitakeppninni.

Markaskor: Örn 12, Andri H 7, Toni 5, Andri Már 2, Keli 2, Sissi 2, Trausti, Steini, Orri og Þór allir með eitt mark hver. Sverrir varði 9 skot og fékk á sig 18 en Axel varði 7 skot og fékk á sig 18.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

  • Mfl. karla 1. deild 2009-2010:

Fjölnir -  Selfoss 14 : 32
Selfoss -  Víkingur   22 : 20
Selfoss -  Þróttur 35 : 22
Afturelding  -  Selfoss 26 : 25 
ÍBV -  Selfoss 23 : 25
Selfoss -  ÍR 32 : 28
Selfoss -  Fjölnir 36 : 17
Víkingur -  Selfoss 30 : 32 
Selfoss - ÍBV 33 : 29
Þróttur - Selfoss 20 : 44
Selfoss - Afturelding 32 : 23
ÍR - Selfoss 30 : 28
Víkingur - Selfoss 27 : 33
Selfoss - Fjölnir 34 : 17
Selfoss - ÍR 30 : 21
ÍBV - Selfoss 32 : 28
Þróttur - Selfoss 23 : 31
Selfoss - Afturelding 27 : 24

Selfoss - sigurvegari í 1. deild 2010
byko.islyfogheilsa.iswww.olis.iswww.orkusalan.islandsbankinn.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta