Framarar úr Safamýri renndu austur fyrir fjall í gærkvöld og öttu kappi við okkar menn í 92-liði Selfoss. Gestirnir voru sterkari lengstum og höfðu ávallt frumkvæðið í leiknum. Fram leiddi í hálfleik 17-20 en vörn okkar manna í fyrri hálfleik var eins og svissneskur ostur, æði götóttur! Varnarleikurinn skánaði ekki í seinni hálfleik, að minnsta kosti ekki fyrstu 10 mínúturnar. Þá var staðan 20-27 fyrir Fram og stefndi allt í sigur gestanna. Þá var eins og heimamenn hefðu áttað sig á því að með því að spila vörn aukast sigurlíkurnar til mikilla muna og Fram náði aðeins að skora átta mörk það sem eftir lifði leiks.
Selfyssingar voru oft einum færri á þessum kafla en það kom ekki að sök. Kom það heldur ekki niður á liðinu er Jóhann Gylfi fékk sína þriðju brottvísun er um 10 mínútur voru eftir af leiknum. Jóhann hafði leikið afar vel í leiknum en með brotthvarfi hans var eins og menn stigu upp vörninni í hans fjarveru.
Á síðustu 20 mínútum leiksins skorar Selfoss 16 mörk en fær aðeins á sig átta. Selfoss náði að hafa eins marks sigur og var það Anton Freyr Traustason sem skoraði sigurmarkið. Framarar fengu tvö færi í lok leiks til að jafna en góð vörn sem og glæsilega innkoma Boga Thorarensen komu í veg fyrir það. Bogi varði 10 skot í seinni hálfleik en Axel varði ágætlega í fyrri hálfleik eða 10 skot. Skotnýting okkar manna í leiknum var ekki góð. Einar, Keli og Toni fóru illa með mörg góð færin en liðið nær samt að knýja fram sigur. Það sýnir mikinn styrk, nái liðið að berja í sig smá varnarleik eru því allir vegir færir.
Síðuritari sá á mönnum að þeir vilja í úrslitakeppnina og þar getur allt gerst. Liðið á tvo leiki eftir, að Hlíðarenda við Val og heima gegn Stjörnunni. Strákarnir hafa verið í mikilli sókn undanfarið og er það von síðuritara að sú sókn haldi áfram. Ritari náði ekki í Arnar þjálfara í gær þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Dómgæslan var í öruggum höndum þeirra Ramunas Mikalonis og Jón Ragnars Ólafssonar. Stóðu þeir félagar sig afar vel að mati síðuritara en leikurinn var mjög hraður og því í mörgu að snúast. Selfoss fékk 1 víti í leiknum á móti 8 hjá Fram. Selfoss fékk 6 brottvísanir í leiknum en Fram 4.
Einar skoraði 10, Toni 8, Keli 6, Jóhann Gy 3, Ingvi 3, Geiri 2, Maggi 2 og Gísli nötter og Felix sitt markið hvor. Axel og Bogi vörðu hvor sín 10 skotin.
| Fjölnir | - | Selfoss | 14 | : | 32 |
| Selfoss | - | Víkingur | 22 | : | 20 |
| Selfoss | - | Þróttur | 35 | : | 22 |
| Afturelding | - | Selfoss | 26 | : | 25 |
| ÍBV | - | Selfoss | 23 | : | 25 |
| Selfoss | - | ÍR | 32 | : | 28 |
| Selfoss | - | Fjölnir | 36 | : | 17 |
| Víkingur | - | Selfoss | 30 | : | 32 |
| Selfoss | - | ÍBV | 33 | : | 29 |
| Þróttur | - | Selfoss | 20 | : | 44 |
| Selfoss | - | Afturelding | 32 | : | 23 |
| ÍR | - | Selfoss | 30 | : | 28 |
| Víkingur | - | Selfoss | 27 | : | 33 |
| Selfoss | - | Fjölnir | 34 | : | 17 |
| Selfoss | - | ÍR | 30 | : | 21 |
| ÍBV | - | Selfoss | 32 | : | 28 |
| Þróttur | - | Selfoss | 23 | : | 31 |
| Selfoss | - | Afturelding | 27 | : | 24 |
