4. flokkur karla leikur sinn seinasta heimaleik í deild um helgina er A-liðið mætir ÍR. Leikurinn fer fram á laugardaginn kl. 14:00 í Vallaskóla. Strákarnir í A-liðinu hafa unnið alla 7 heimaleiki sína í vetur og stefna að því að vinna þann áttunda á laugardaginn.
Heimasíðan hvetur fólk eindregið til að mæta í Vallaskóla og berja strákana augum.
