Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

12.3.2010 | Handboltaakademía

Tap hjá 3 fl. B fyrir HK á útivelli

Okkar strákar stóðu sig mjög vel í fyrri hálfleik og héldu í við heimamenn. Staðan í hálfleik var 14-13 fyrir HK og munurinn í fyrri hálfleik var aldrei meiri en 1-2 mörk. HK spilaði 6-0 vörn og gekk skyttum okkar liðs mjög vel að koma boltanum í markið.

Þegar um 12 mín. voru búnar af síðari hálfleik þá byrjaði að draga í sundur með liðunum og svo þegar um 10 mín. voru eftir af leiknum þá var orðið ljóst að HK myndi vinna leikinn. HK spilaði í í síðari hálfleik svo kallaða 5+1 vörn á vinstri kantinn og okkar menn réðu alls ekki við þá vörn HK manna en gáfust þó aldrei upp og gerðu sitt allra besta í leiknum. Mikið var um tapaða bolta eftir að HK breytti um vörn og þá fengu HK menn auðveld mörk úr hraðaupphlaupum.

Selfoss liðið var einungis skipað 9 leikmönnum að þessu sinni þar sem forföll og meiðsli komu í veg fyrir að fleiri leikmenn væru lausir í leikinn. Fyrir vikið var lítið hægt að skipta inná þegar illa gekk að þessu sinni. Þeir sem spiluðu stóðu sig þó með sóma.

 


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta