Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

14.3.2010 | Handbolti

4. flokkur vann ÍR

A-lið 4. flokks karla lék sinn seinasta heimaleik í deild á laugardaginn er liðið fékk ÍR í heimsókn. Selfoss var mun öflugara í leiknum og vann 32-24 sigur en heimamenn leiddu 18-12 í hálfleik. Selfoss vann því alla 8 heimaleiki sína í vetur í deild og tókst ætlunarverk sitt á því sviðinu.

Selfoss fór reyndar rólega af stað í leiknum. Þeir lentu 2-4 undir og svo var jafnt 8-8 um miðjan hálfleik. Gefur Selfoss þá í  og leiðir 18-12 í hálfleik. Í síðari hálfleik var aldrei spurning hvort liðið myndi sigra. Selfoss náði snemma 9 marka forystu en sýndi ÍR full mikla miskunn eftir það. Lokatölur urðu 32-24 sigur okkar manna.

Sóknarleikurinn var nokkuð góður þrátt fyrir að mikið væri um tæknifeila en glataðir boltar voru 13 talsins sem er vel yfir meðaltali. Að öðru leyti var sóknin jákvæð. Þar voru margir leikmenn að skila til liðsins og voru til að mynda sex leikmenn með 4 eða fleiri mörk skoruð. Varnarlega var liðið nokkuð gott eftir stöðuna 8-8 og bakvið hana varði Hermann 23 skot í leiknum (49%). Stundum vantaði þó upp á betri samvinnu milli manna í vörninni sem og betri fótavinnu hjá sumum.

Selfoss vann eins og áður segir alla 8 heimaleiki sína í deildinni. Þeir gætu fengið heimaleik í úrslitakeppninni nái þeir góðum úrslitum í síðasta leik sínum í deild en næstkomandi laugardag sækir liðið Aftureldingu heim. Í þann leik fer Selfoss á einstaklega góðu „run-i“ en liðið hefur unnið 9 af 10 leikjum sínum eftir áramót. Sá sprettur hófst einmitt á frábærum sigri gegn Aftureldingu og verður forvitnilegt að sjá hvernig leikurinn fer eftir rétt um vikutíma.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta