Selfoss-2 í 2.flokki mætti UMFA-1 í gær á Selfossi og hafði sigur 42-27 en heldur illa gekk hjá okkar mönnum að slíta sig frá gestunum. Í hálfleik stóð 19-15. Selfyssingar höfðu alltaf frumkvæðið í leiknum ef frá eru skildar fyrstu mínútur leiksins er UMFA gerðu tvö fyrstu mörkin.
Heimamenn vörðu mestum tímanum í vörn í leiknum og keyrðu mikið af hraðaupphlaupum sem og seinni bylgju. Enda skora þeir 42 mörk í leiknum en langt er síðan þeir hafa skorað svo mörg mörk í einum leik. Vörnin var ágæt lengst um en of oft misstu menn þolinmæðina enda flestar sóknir UMFA afar langar.
Ketill Hauksson lék vel og skoraði mikið, en hann er í 3. flokki. Þá kom Orri Davíðsson til baka eftir magurt gengi sóknarlega í síðustu tveimur leikjum. Aðalsteinn átti sinn langsbesta leik í langan tíma þrátt fyrir erfiða byrjun. Þá komu markmennirnir í 3. flokki vel inn í leikinn. Axel og Bogi vörðu 20 skot og stóðu sig vel. Síðuritara þótti gaman að sjá til Axels í leiknum þar sem hann sýndi að hann hefur verið að leika undir getu með 3. flokki undanfarið. Þá stóð Bogi svo sannarlega fyrir sínu. Örn Þrastarson meiddist er um 10 mínútur voru liðnar af leiknum og vonum við það sé ekki alvarlegt. Örn hafði leikið vel fram að meiðslunum í leiknum. Þess ber einnig að geta að hann hefur leikið frábærlega það sem af er tímabilinu. Eða svo finnst a.m.k. síðuritara. Andri Már lék sinn síðasta leik í bili en hann fer í krossbandsaðgerð fljótlega og vonum við hann nái sér sem fyrst.
Sem betur fer eigum við á Selfossi þvílíkan fjársjóð bæði í fjölda leikmanna sem og getu þeirra þannig að alltaf kemur maður í manns stað.
Síðuritari var sumsé nokkuð sáttur við leikinn í heildina.
Mörk: Orri 10, Keli 8, Steini 7, Mási 3 (eitt af þeim úr yfirnáttúrlega flottu hraðaupphlaupi), Einar 3, Þór 3, Andri H 2, Karlsson 2 (misnotaði sitt fyrsta skot á tímabilinu), Örn 1 og Maggi 1. Axel varði 15 skot og Bogi 5.
